Motorhead

Við félagarnir horfum á tónleika með Motorhead síðasta laugardagskvöld og aftur mundi maður hvað þetta er frábær sveit :-) Kynningin hjá Lemmy segir allt "Hello we're Motorhead and we're rock n'roll". Ekki spillti fyrir að ég fékk uppáhaldslagið mitt "Killed by death" sem þeir fluttu á sinn óaðfinnanlega hátt :-)

Textinn í "Killed by death" er náttúrlega ekkert nema snilldin ein-

If you squeeze my lizard
I´ll put my snake on you
I´m a romantic adventure
And I´m a reptile too

CHORUS:
But it don´t make no difference
´cos I ain´t gonna be, easy, easy
the only time I´m easy´s when I´m
Killed by death
Killed by death
Killed by death
Killed by death

I´m a lone wolf ligger
But I ain´t no pretty boy
I´m a backbone shiver
and I´m a bundle of joy

CHORUS

But it don´t make no difference
´cos I ain´t gonna be, easy, easy
the only time I´m easy´s when I´m
Killed by death
Killed by death
Killed by death
Killed by death

Killed by death
Killed by death
Killed by death
Killed by death

Ég meina er nokkuð hægt að vera dýpri en þetta? :-) ;-) ;-) ;-)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grumpa

LEMMY ER GUÐ!!!

Grumpa, 25.4.2007 kl. 14:02

2 Smámynd: Thelma Ásdísardóttir

Tær snilld!!!! Ég held samt frekarað Lemmy sé ðug..... :)

Thelma Ásdísardóttir, 25.4.2007 kl. 21:08

3 Smámynd: Jens Guð

Eins og Lemmy er ruglaður þá semur hann skemmtilega texta.  Ég las æfisögu hans fyrir nokkrum árum.  Þar þótti mér áhugaverðast þegar hann fór að kenna Sid Vicious á bassa.  Lemmy hafði aldrei haft nemanda sem var jafn skilningslaus varðandi út á hvað bassalína gengur.  Eftir nokkra tíma tilkynnti Lemmy Sid að kennslan væri vonlaus tímaeyðsla út í loftið.  Viku síðar hittust þeir og Sid segist vera orðinn bassaleikari Sex Pistols.  Lemmy sagði í forundran:  "En þú kannt ekki á bassa."  Sid svaraði eitthvað á þessa leið:  "Já,  ég veit.  En samt."

Síðari tíma uppljóstrun Malcolms McLarens leiddi í ljós að Sid spilaði aldrei á bassa með Sex Pistols.  Jú,  hann spilaði á bassa og hélt að hann væri að spila með hljómsveitinni.  En bassinn hans var óvirkur.  Það var Chris Spedding sem spilaði á bassann bak við tjöldin án þess að Sid vissi af því.

  Þó að það hafi aldrei verið viðurkennt - og Steve Jones þrætir fyrir það - þá er talið að Chris hafi spilað flestan gítarleik á einu alvöru plötu - dúndur flottu plötu - Sex Pistols.  Bókanir í hljóðverinu sýna að Chris var þar í fullri vinnu.  Hann hefur aldrei neitað en aldrei játað heldur.   

Jens Guð, 27.4.2007 kl. 00:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband