Hvar var tískulöggan?

Ég fæ aldrei nóg að skoða 80's tískuna. Í hvaða heimi vorum við? Þótti þetta virkilega kúl?

 

Þið verðið að skoða þessa myndklippu 

 

En gerið það, horfið á allt myndbandið. Miðkaflinn er sérstaklega ótrúlegur Smile 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað gerðist eiginlega þarna um miðbik myndbandsins?

Sko mér fannst þetta alls ekki svo slæmt í byrjun, færi jafnvel í galla gellunnar án þess að roða, fannst hann nett töff sko en jahérna... við miðjuna fór allt til fjandans. 

Ragga (IP-tala skráð) 7.7.2007 kl. 19:03

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Æ Kiddi, þarf bara að kalla þetta fram í huganum!

En smá grín af sja´lfum mér.

Ég "Smitaðist nefnilega af veirunni" smávegis ´87 eða ´88, ákvað að fá mér flottustu hárlitunina sem til væri, á mitt þá þykka og skollitaða axlarsíða hár. Valdi sko sn´jóhvítt haha, sat í vel á annan tíma í stólnum og hver skildi svo útkoman hafa verið?

ÉG VARÐ GRÁR hahahaahahaha!!!

Magnús Geir Guðmundsson, 7.7.2007 kl. 21:08

3 Smámynd: Guðrún Markúsdóttir

Einu sinni fengum við tvær vinkonur okkur okkur einnota hárlit og hárið á henni varð glansandi og fjólublátt, eins og til stóð, en mitt varð grænt. Hef verið ánægð með skollitað síðan. Ég held að engin furðutíska jafnist þó á við það sem nú má sjá meðal unglingsdrengja, rasskinnarnar lafandi útfyrir buxnasstrenginn - hvar eru tískulöggurnar núna?

Guðrún Markúsdóttir, 7.7.2007 kl. 23:25

4 Smámynd: Guðrún Markúsdóttir

Úpps, einu s-i of mikið.

Guðrún Markúsdóttir, 7.7.2007 kl. 23:26

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Jeminn eini....algert tískuklúður!!! En vá hvað myndin í blogghausnum þínum er einstaklega flott!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.7.2007 kl. 22:10

6 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Takk Katrín

Kristján Kristjánsson, 8.7.2007 kl. 22:29

7 Smámynd: Grumpa

ég man sko eftir þessu vídeói og þótti það jafn hallærislegt þarna "back in the days" eins og mér finnst það núna. Aftur á móti þótti WASP og Mötley Crue yfirgengilega svalt og enginn sá neitt athugavert við karlmenn í rauðum spandexbrókum, netsokkabuxum  og málaða eins og dragdrottningar from hell 

Grumpa, 9.7.2007 kl. 16:03

8 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Og það besta er að þessi tíska á öll eftir að koma aftur, svo ekki henda herðapúðunum. Og þegar það gerist líður ekki á löngu þar til engum finnst það fyndið lengur ;-) Gleymi aldrei þegar kærasti systur minnar kom og fékk lánaða forláta, útsaumaða hippamussu fyrir MH ball. Skilaði henni svo aftur (strauaðri, sem var fyrsti misskilningurinn) og sagðist vera að skila búningunum. ,,Búningnum? Pétur, þetta voru íveruföt!"

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 10.7.2007 kl. 02:09

9 Smámynd: Jens Guð

  Ég sá aldrei neitt flott við Mötley Crue eða Wasp.  Mér hefur alltaf þótt þessar hljómsveitir mjög hallærislegar,  eins og nánast allt sem tilheyrir 80´s.  Söngvarinn í WASP má þó eiga það að hann er þokkalega vel gefinn.  Það sama er ekki hægt að segja um frægasta liðsmann MC,  Tommy Lee. 

Jens Guð, 11.7.2007 kl. 01:03

10 Smámynd: Ruth Ásdísardóttir

Ég horfði á myndbandið og verð bara að viðurkenna mér fannst það algjör snilld. Nostalgía eins og hún gerist best! Mér fannst til dæmis Olvia Newton John rosalega flott og hefði ekkert á móti þvi að eiga hvíta kjólinn sem hún var í, í lok myndbandsins. Hann var æðislegur. :)

Ruth Ásdísardóttir, 12.7.2007 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband