Styttist í Dauðasegulinn

12 sept næstkomandi kemur loks nýi Metallica diskurinn út eins og flestir rokkáhugamenn vita. Ég bíð spenntur eins og aðrir. Skrýtið með Metallica, þó þeir hafi ollið vonbrigðum plötu eftir plötu eftir plötu og gefið út síðast eina verstu plötu rokksögunnar þá bíður maður samt spenntur!

En ástæðan er samt augljós. Metallica er ein besta tónleikasveit í heimi. Hún verður það áfram. Eins þegar ég frétti að Rick Rubin er upptökustjóri nýju plötunnar óx mér von að platan gæti orðið góð. Nú er fyrsta lagið farið að hljóma og ég er ekkert sérlega hrifinn. Alltílagi lag og náttúrlega betra en öll lögin á síðustu plötu. Greinilega afturhvarf til Justice. 

 

Þar sem ég kemst ekki til akureyrar að hlusta með vinum mínum í Reiðmönnum ætla ég bara að setjast með græjurnar í botni þegar ég fæ diskinn. Vonbrigði eða ekki, kemur í ljós en ég ætla samt að sjá þá aftur einhvertímann á tónleikum Devil

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Búinn að hlusta á diskinn, lögin í lengri kantinum og engir sérstakir húkkarar, þokkalegur diskur.

viðar (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 13:16

2 identicon

Fundurinn frestast um eina helgi og er fyrirhugaður um aðra helgi... þú kemst ekki þá Kiddi? Hlustunarbannið er held ég dottið úr gildi hjá okkur þar sem einhverjir eru búnir að hlusta á gripinn, að hluta til eða í heild. Enda ekki forsvaranlegt að halda mönnum frá plötunni í hálfan mánuð. Þetta verður þá bara á öðrum forsendum og það er ekkert verra.... en rosalega væri nú gaman ef þú gætir komið. Kveðja B.

Bubbi J. (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 18:21

3 identicon

Já það er eitthvað við þá sem láta mann bíða spenntan þrátt fyrir að þeir gefi út hverja vonda plötuna á fætur annari. Ég er ekki neitt sérstaklega hrifin af þessu nýja lagi verð ég að viðurkenna.

Ragga (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 18:50

4 identicon

Er búinn að hlusta verulega mikið á alla plötuna og ég get vottað það að hér er um meistaraverk að ræða. Gamal góða Metallica komin aftur! Stórkostleg plata!

Kobbi Maiden (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 21:13

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Dæmi aldrei fyrirfram né fyrr en eftir ákveðin tíma, hef heyrt tvö lög og hlustað nokkuð á bæði, finnst þau verða betri við hverja hlustun og Rick karlinn Rubin bregst ekki, hrátt en jafnframt pottþétt upptökudæmi!

Magnús Geir Guðmundsson, 10.9.2008 kl. 00:29

6 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Spennandi! Var að fá diskinn þannig að ég veit hvað ég verð að gera í kvöld :-)

Kristján Kristjánsson, 10.9.2008 kl. 15:35

7 Smámynd: Lauja

Klukk - klukk - klukk ....... þú sérð á minni síðu hverju þú átt að svara. 

Lauja, 10.9.2008 kl. 19:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband