Rick Wright

Hljómborðsleikarinn Rick Wright er látinn. Hann var alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér og framlag hans til Pink Floyd ómetanlegt.

 Hann gaf einnig út 2 ágætar sólóplötur "Wet Dream" 1978 og "Broken China" 1996

Hér er lag tekið af tónleikaferðlagi David Gilmour 2006 þar sem hann syngur og spilar á hljómborð.

 

H.I.F.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Blessuð sé minning hans.

Bubbi J. (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 18:18

2 identicon

já þá er hann farinn. En gaman að sjá að þú ert að hlusta á Edgar Winther gamla uppáhaldsbrýnið mitt. Sá karlinn á konsert í Minneapolis fyrir 4 dollara. Þá spilaði hann lögin af "They only come out at night" m.a. Hann tók Undercover man, Free ride, Frankenstein, Tobaco road, var æðislegur. Er með nýlegan konsert með honum á dvd þar sem hann er með Chris Frasier á trommur. Maðurinn er æðislegur!!

bkv.

sandkassi (IP-tala skráð) 16.9.2008 kl. 01:33

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jamm, blessuð sé minning RW. En Johnny er miklu merkilegri tónlistarmaður en Edgar bróðir hans, Gunnar minn!?

Magnús Geir Guðmundsson, 16.9.2008 kl. 01:48

4 identicon

Því er ég ekki sammála. Raunar hef ég heyrt ansi marga segja þennan frasa, en það hafa verið menn sem þekkja lítið til ferils Edgars.

Hitt er annað mál að þeir eru mjög ólíkir.

sandkassi (IP-tala skráð) 16.9.2008 kl. 02:17

5 identicon

Það er eftirsjá í RW, það er ljóst. Ekki ætla ég að gera uppá milli þeira albinóabræðra, en er afturá móti að hlusta þessa dagana á nýjasta disk Edgars sem heitir Rebel Road og er þrusu finn rokkari.

viðara (IP-tala skráð) 16.9.2008 kl. 08:23

6 identicon

Það eru kannski mikið færri sem þekkja feril Edgar Winter en Johnny, en Edgar er ekki síður merkilegur tónlistarmaður en Johnny bróðir hans. Frankenstein hefur mér alltaf þótt skemmtilegt lag og Easy Street hefur líka verið í uppáhaldi, en þess má geta að David Lee Roth hefur krákað það lag. Annars hef ég alltaf mjög gaman af tónleikaplötu sem þeir bræður gerðu saman og heitir Together, nema hvað. Þar taka þeir gamla soul, blús og rock´n roll slagara.

Bubbi J. (IP-tala skráð) 16.9.2008 kl. 10:25

7 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Gaman af þessu :-) Ég hafði ekki hlustað á Edgar Winter plötuna árum saman og keypti endurútgáfu fyrir stuttu af "They only came out" og var mjög hrifinn. Ég var búinn að gleyma hvað hann var með góða spilara með sér. Ronnie Montrose á gítar og gamla 80's boltann Dan Hartman. Ég ætla að kafa betur í tónlist þeirra bræðra sem er ólík vissulega en athyglisverð. Takk Bubbi fyrir að benda mig á tónleikaplötuna með þeim saman ég þaf að útvega mér hana. Ætla líka Gunnar að grafa upp þennann konsert á DVD.

Kristján Kristjánsson, 16.9.2008 kl. 11:26

8 Smámynd: Halldór Ingi Andrésson

Richard Wright hjartað í Pink Floyd, hann samdi frábær lög þegar ekkert gekk eftir að Syd Barrett hætti hann var góður söngvari, hreint frábær hljómborðsleikari og samdi "The Great Gig In The Sky" nota bene. Það er ekki hægt að ímynda sér Pink Floyd án hans. Ég er búinn að vera að hlusta á Floyd (A Tree Full Of Secrets 17CD) undanfarnar vikur einhverra hluta vegna og Rick er endalaust að gleðja mitt geð eins og þeir allir reyndar. Rick var að taka upp instrumental plötu sem átti að fara að koma út. Hann dó úr krabbameini. RIP. Mjög mikill missir í tónlistarheiminum.

Halldór Ingi Andrésson, 16.9.2008 kl. 21:57

9 identicon

já það er þessi hérna

http://www.amazon.com/Edgar-Winter-Live-at-Galaxy/dp/B0000A59ZS

Aðrir sem ég hef séð eru ekki eins góðir.

Eins geturðu talað við Binna http://brynjar-brynolfsson.blog.is/blog/brynjar-brynolfsson/ og hann skutlar á þig rippuðu eintaki með kærri kveðju frá mér:)

bkv

sandkassi (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 01:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.