Smá kvikmyndatónlist

Jæja ég komst á ról í dag eftir flensukastið Smile Næg verkefni sem hafa hlaðist upp í vinnunni. Dagurinn flaug enda áfram og mjög gaman. Er að fíla nýju Jan Mayen plötuna mjög vel. Hún vinnur á við hverja hlustun.

 

Mér finnst svo ægiilega gaman að setja inn lög á síðuna mína að ég ætla að halda því aðeins áfram og í dag eru það nokkur kvikmyndalög sem eru í uppáhaldi Smile

 

Fyrst er það lag úr myndinni Arizona Dream. Innilega vanmetin mynd finnst mér. Johhny Depp lék aðalhlutverkið og Goran Bregovic gerði tónlistina.

 

 



Næst er lag eftir kónginn Ennio Morricone sem er að mínu áliti besta kvikmyndatónskáld sögunnar. Þetta er lagið Ecstacy of gold úr myndinni Good bad and the ugly. Metallica gerðu kóver af þessu lagi sem nýlega kom út á sanfdisk sem heitir We all love Ennio Morricone. Þetta er upptaka af tónleikum Smile




Að lokum lag úr myndinni House of the flying daggers. Kathleen Battle syngur. Gæsahúð Smile




Segið svo að það sé bara rokk hjá mér Tounge



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Thelma Ásdísardóttir

Sammála þér með Arizona Dream. Stórkostleg mynd sem ég get horft á aftur og aftur og ekki er tónlistin síðri. Tókstu nokkuð eftir því að ég rændi af þér myndinni í vhs formi þangað til hún kom út á dvd? :)

Thelma Ásdísardóttir, 23.8.2007 kl. 00:05

2 Smámynd: Thelma Ásdísardóttir

Tónlistin í House of Flying Daggers er mjög góð líka og myndin sjálf algert konfekt fyrir augun. Það er að koma ný mynd eftir sama leikstjóra á einhverja kvikmyndahátíðina núna í haust, hlakka til að sjá hana

Thelma Ásdísardóttir, 23.8.2007 kl. 01:22

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Viltu kíkja á mitt blogg og hjálpa til (aftur) ?? Please!!

Heiða B. Heiðars, 23.8.2007 kl. 20:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.