Styttist í London

Það hefur ekki gefist mikið færi á blogg undanfarið enda mikið um að vera Smile Opnuðum plötubúð á nýjum stað formlega í dag á Laugavegi 35. Fyrsti dagurinn var frábær. Nóg að gera og mér finnst rosalega skemmtilegt að vinna á þessum stað. Hugsa sér maður fær borgað fyrir það líka LoL

 

Nýi Sigur Rósar diskurinn var á fóninum í allan dag og rosalega vinnur hún vel á. Þessi plata er alveg frábær. Þeim tekst alltaf að toppa sig þessir strákar. Verst að ég verð erlendis næstu helgi þegar tónleikarnir eru í laugardalnum.

 

Annars er ég alveg klár í ferðina. Löngu búinn að fá alla tónleikamiða í hendur og leikhúsmiða o.fr. Það er svo ótrúlega auðvelt að ferðast í dag á tölvuöld. Eina sem er að maður verður að passa sig á að ofbóka sig ekki þannig maður nái líka að gera eitthvað óvænt og slappa af eitthvað líka. Það eru tónleikar á hverjum degi sem ég væri til í að sjá.

Það sem ég er búinn að festa eru tónleikar með Iron Maiden þar sem m.a. Without Temtation hita upp. 

 Ég fer á festival á Hyde Park þar sem tæplega 40 sveitir spila á 4 sviðum. Þar ætla ég helst að sjá Morrissey, Beck, The National, Sioxie, New York Dolls og kannski fleiri.

 Brian Wilson er með tónleika í Royal Albert Hall sem mig hlakkar mikið til að sjá.

 Svo ætla ég að skella mér á Bon Jovi tónleika. Þó ég sé ekki mikill Bon Jovi kall þá eru þeir frábærir á tónleikum. Sá þá fyrir mörgum árum að þeir komu mér mjög á óvart.

 Síðan eru The Police, Eric Clapton, Sheryl Crow, Lou Reed og Spock's Beard að spila meðan ég er úti og ég verð að sjá hvort ég hafi tíma til að ná einhverjum af þeim konsertum. 

 

En ég veit að verður bara gaman úti Wizard

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Þú hittir greinilega á óskastundina þarna í London, nema þú ætlir að stoppa þaðanaf lengur, sem er frekar dýrt í London, svo ég reikna ekki með því. Þú skemmtir þér ábyggilega vel, og maður þarf greinilega að líta við á Laugaveginum við tækifæri.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 23.6.2008 kl. 23:04

2 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Ég hitti á góðan tíma í London. Ég áhvað fyrir löngu að pæla ekki of mikið hvað væri að gerast heldur miða við einn atburð sem í þessu tilfelli voru Iron Maiden tónleikarnir. Síðan að panta flug og hótel snemma til að fá góð verð. Svo kom í ljós smátt og smátt fullt af skemmtilegum atburðum á þeim tíma sem ég gisti í London þannig þetta gengur allt upp. Að vísu lítur út ef verkfall flugumferðarstjóra skellur á þá missi ég líklegast af Bon Jovi tónleikunum. Það verður að hafa það. Vona samt það besta.

Endilega kíktu við á laugaveginum Anna. Það verður gaman að sjá þig

Kristján Kristjánsson, 23.6.2008 kl. 23:40

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Til lukku með búðina Kiddi!

JBJ og Co. voru allavega ansi skrautlegir þarna á Donnington '87!

Ættir nú að kíkja á Sheryl Crow, en sleppa gamla kærastanum hennar Clapton!

Hún er svo falleg og góð tónlistarkona!

Þú ættir kannski frekar að hafa áhyggjur að komast ekki aftur heim!?

Magnús Geir Guðmundsson, 24.6.2008 kl. 01:19

4 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ég hefði viljað sjá Spock´s Beard í gamla daga.

Ingvar Valgeirsson, 24.6.2008 kl. 03:06

5 identicon

Fæst Soundspell platan hjá þér? Ég hef leitað að henni alls staðar án árangurs :-(    Hlóð henni í fyrra haust niður á ipodinn hjá vini en langar í gripinn.

Ingimundur H. (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 11:02

6 Smámynd: Gulli litli

Kúl...........

Gulli litli, 24.6.2008 kl. 13:24

7 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Maggi: Takk fyrir það. Ég vona ég komist heim fyrir rest Shery Crow er að spila á sömu tónleikum og Clapton og mér finnst ólíklegt að ég nái þeim konsert.

Ingvar: Ég er frekar spenntur fyrir Spock's Beard tónleikunum. Þeir eru lí litlum sveittum klúbb og ég ætla reyna að kíkja. Finnst þeir fínir.

Ingi: Ég á ekki Soundspell í búðinni. Held að dreifingaraðilinn sé hættur. Ætla að athuga hvort ég nái honum eftir einhverjum leiðum. Læt þig vita ef það tekst.

Gulli: Takk þetta verður meiriháttar!

Kristján Kristjánsson, 24.6.2008 kl. 22:19

8 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Maggi: Já Bon Jovi komu á óvart 1987. Hugsa sér það eru rúm 20 ár síðan maður sá þá! Tíminn flýgur

Kristján Kristjánsson, 24.6.2008 kl. 22:22

9 Smámynd: Lauja

Hafðu það gott í London....... þar er ekki hægt að láta sér leiðast

Lauja, 26.6.2008 kl. 11:44

10 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Takk Lauja Það er ekki sjéns

Kristján Kristjánsson, 26.6.2008 kl. 12:53

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skemmtu þér mega vel strákur. 

Ásdís Sigurðardóttir, 26.6.2008 kl. 18:25

12 identicon

ef þú kemst á spocks beard þá held ég að Frost* séu að hita upp fyrir þá.. það er snilldarband sem átti eina bestu plötu síðasta árs að mínu mati.. Milliontown heitir hún.. tjekkaðu á þeim.

Kveðja,

Kiddi

Kiddi (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 17:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.