Leikarar sem taka lagið # 1 Lee Marvin

Það hefur stundum komið fyrir að leikarar sem eru þekktir fyrir allt annað en söng taka lagið í kvikmyndum. Oftast er það mjög fyndið, stundum vandræðalegt og örugglega einhverjir sem hafa dauðséð eftir að hafa látið plata sig í það. Leikarinn stórgóði Lee Marvin var frægur fyrir allt annað en söng. Hann lék oftast drykkfellda bófa og síðar á ferlinum ofurtöffara sem voru oft á mörkunum að vera hetjur eða bófar. Ein besta mynd hans var Point Blank þar sem hann lék smákrimma sem var að leita af félögum sínum sem sviku hann og skildu eftir sem dauðann. Hann lék drykkfelldan byssumann í Cat Ballou með Jane Fonda og í einkalífinu var hann þekktur drykkjumaður. Í einni mynd var hann skotinn niður og féll með miklum dynki niður. Mönnum þótti það frábær leikur en staðreyndin var að hann var blindfullur í tökunni og datt þess vegna svona raunverulega. En skotið var notað :-)

 

Hann og Clint Eastwood léku aðalhlutverkið í söngleik sem heitir "Paint your wagon" Þeir sungu báðir í myndinni og satt að segja er myndin það léleg að hún verður einhvernvegin "skemmtilega léleg". Lee Marvin leikur drykkfelldann gullgrafara sem bjargar lífi Clint Eastwood og Eastwood slæst í för með Marvin í þakkarskyni. Marvin hefur þó vit á því að reyna ekki mikið á röddina og raular í raun lagið Wandrin star.

 

 

Síðan líka fyndið að flestir leikararnir sem taka lagið í þessari mynd kunna ekki að syngja með einni undantekningu. Maður að nafni Harve Presnell sem kemur út eins og Pavarotti við hlið hinna. Ég læt fylgja með í gamni lag sem hann syngur í myndinni :-)

 

 

 

 

Að lokum kemur listi með helstu myndum Lee Marvin

• Gorky Park (1983) .... Jack Osborne

• Death Hunt (1981) .... Sgt. Edgar Millen, RCMP

• The Big Red One (1980) .... The Sergeant

• Avalanche Express (1979) .... Col. Harry Wargrave

• Shout at the Devil (1976) .... Colonel Flynn O'Flynn

• The Klansman (1974) .... Sheriff Track Bascomb ... aka KKK ... aka The Burning Cross

• The Iceman Cometh (1973) .... Theodore 'Hickey' Hickman

• Emperor of the North Pole (1973) .... A no. 1 ... aka Emperor of the North (USA: reissue title)

• Prime Cut (1972) .... Nick Devlin

• Pocket Money (1972) .... Leonard

• Monte Walsh (1970) .... Monte Walsh

• Paint Your Wagon (1969) .... Ben Rumson

• Hell in the Pacific (1968) .... American Pilot

• Sergeant Ryker (1968) .... Sgt. Paul Ryker ... aka The Case Against Paul Ryker ... aka The Case Against Sergeant Ryker ... aka Torn Between Two Values

• Point Blank (1967) .... Walker

• The Dirty Dozen (1967) .... Major Reisman

• The Professionals (1966) .... Henry 'Rico' Fardan (leader)

• Ship of Fools (1965) .... Bill Tenny

• Cat Ballou (1965) .... Kid Shelleen/Tim Strawn

• The Killers (1964) .... Charlie Strom ... aka Ernest Hemingway's The Killers (USA: promotional title)

• Donovan's Reef (1963) .... Thomas Aloysius 'Boats' Gilhooley

• The Man Who Shot Liberty Valance (1962) .... Liberty Valance

• Raintree County (1957) .... Orville 'Flash' Perkins

• The Rack (1956) .... Capt. John R. Miller

• Attack (1956) .... Lt. Col. Clyde Bartlett, CO, White Battalion

• Seven Men from Now (1956) .... Bill Masters ... aka 7 Men from Now (Australia)

• Not as a Stranger (1955) .... Brundage ... aka Morton Thompson's Not as a Stranger (USA: complete title)

Bad Day at Black Rock (1955) .... Hector David

• The Caine Mutiny (1954) .... Meatball

• The Wild One (1953) .... Chino

• Gun Fury (1953) .... Blinky

• The Big Heat (1953) .... Vince Stone

• The Stranger Wore a Gun (1953) .... Dan Kurth

• The Duel at Silver Creek (1952) .... Tinhorn Burgess ... aka Claim Jumpers (USA)

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Fyrst þú ert að tala um leikara sem taka lagið má alls, alls, alls ekki gleyma að minnast á lögin "Heartbeat" með Don Johnson og "Party all the Time" með Eddie Murphy. Gargandi snilld.

Svo má minnast á þjóðlagasöngvarann Sven-Bertil Taube, sem lék Hans í The Eagle has landet. Hann gleymist æði oft.

Annars er ég geypihress. Á ég ekki að láta þig hafa pjéning fyrir miðanum?

Ingvar Valgeirsson, 18.8.2007 kl. 15:07

2 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Já og Bruce Willis gaf líka einhverntímann út lag! Ég skelli miðanum niðrí búð í næstu viku. Hlakka ekkert smá til ferðinnar!

Kristján Kristjánsson, 18.8.2007 kl. 15:22

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gleymi aldrei Lee Marvin í Paint your wagon, snilld fannst mér. Sá myndina í Akureyrarbíó árið 1971 minnir mig eða 2.

Ásdís Sigurðardóttir, 19.8.2007 kl. 15:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband