Yndislegur dagur

Ég er svo heppinn að vinna í miðbænum Smile Auðvitað notar maður öll tækifæri sem gefst að kíkja út enda ýmislegt að stússa utandyra Smile Mér finnst æðislegt að labba laugarveginn í hádeginu, setjast á kaffihús og fylgjast með mannlífinu. Túristarnir eru mjög áberandi þessa dagana og lita mannlífið Smile Svo eftir vinnu fær maður sér góðann göngutúr, kíkir í sund eða ræktina. Ég er farinn að stunda yoga tvisvar í viku núna og finnst það æðislegt. Það er ein besta líkamsrækt sem ég hef prófað því maður er algerlega endurnærður á líkama og sál eftir tímana. 

Í kvöld eftir ræktina er það svo kökur og kruðerí hjá Grumpu sem er víst orðin örlítið eldri en hún var. Hlakka til Smile Njótið dagsins kæru vinir Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Njóttu dagsins sjálfur, miðbæjarrotta.

Maja Solla (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 14:54

2 Smámynd: Grumpa

já vinnuumhverfið hérna á Smiðjuveginum er ekki alveg jafn exotískt nema ef vera skyldi fyrir Goldfingar sem er í götunni fyrir neðan
takk annars fyrir æðislegt afmæliskvöld í gærkvöldi! alltaf gaman að fá þessa frábæru vini í heimsókn

Grumpa, 13.7.2007 kl. 14:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.