Æðislegir Air tónleikar

Það var góð upplifun að sjá Air á tónleikum. Þeir voru með hljómsveit með á sviðinu og var sérstaklega gaman að hafa lifandi trommur en ekki trommuheila eins og stundum er hjá Elektró hljómsveitum. Mér fannst prógrammið helst til stutt en uppklöppin tvö voru æðisleg sérstaklega lokalagið. Sviðið, hljómurinn og ljósin voru fín og þetta var æðisleg kvöldstund Smile

 


mbl.is Klappaðir upp tvisvar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

algerlega sammála, snilldartónleikar en ívið stuttir, hefðu svo sannarlega mátt bæta við þónokkrum gullmolum. En þessi trommari var alveg skuggalega góður.

Lengi lifi súrefnið !

Air head (IP-tala skráð) 20.6.2007 kl. 08:58

2 identicon

frábærir tónleikar, en á stundum var eins og hljóðmaðurinn væri meira að hugsa um að hafa hátt heldur en hafa sem best hljómgæði

aaar (IP-tala skráð) 20.6.2007 kl. 12:34

3 Smámynd: Ingi Björn Sigurðsson

Frábærir tónleikar var búin að heyra að bæði að hljómsveitin væri ömurleg hljómleikasveit og frábær.. Sem betur fer er Air ekki bara höfuðtólahljómsveit heldur líka frábær tónleikasveit. Kom mér skemmtilega óvart hvað þeir voru í rauninni hráir.

Ingi Björn Sigurðsson, 20.6.2007 kl. 17:05

4 identicon

Frábært að þú skemmtir þér. Sjálf sat ég heima.

En hey, ég er sko heldur betur farin að hlusta á Icky Thump þessa dagana, hún er æði! 

Ragga (IP-tala skráð) 20.6.2007 kl. 19:14

5 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Frábært Ragga :-) Alveg sammála með Icky. Hún er fín :-)

Sammála Ingi með Air. Þeir voru skemmtilega hráir og bara mjög fín tónleikasveit. Trommarinn var mjög fínn líka.

Air head og aaar takk fyrir kommentin :-)

Kristján Kristjánsson, 20.6.2007 kl. 19:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband