Kínverskt Lýðræði

Það var skrýtin tilfinning að fá nýja Guns n' Roses diskinn "Chinese Democracy" í hendur í dag eftir öll þessi ár. Ég var eiginlega löngu hættur að trúa að hún kæmi nokkru sinni. Ég er reyndar einn af þeim sem finnst þetta vera sólóverkefni Axl Rose. Guns n Roses er hljómsveit sem var og hét :-)

Ég lét vera að hlusta á hana á You Tube því mér finnst alltaf best að hafa plötu í hendi og blasta henni næstu kvöld heima. Svo bara spurning hvernig manni finnst hún. Kemur í ljós :-)

Annars er bloggleti búið að hrjá undirritaðan. Ástandið hefur að sjálfsögðu áhrif hjá mér og mínum. Það hefur mikið verið að gera í vinnunni sem er náttúrlega bara frábært. Búðin gengur vel og bjartsýni í okkar herbúðum. Innflutningur hefur gengið svona sæmilega en eins og flestir höldum við að okkur höndum enda gengið eins og það er. En flestar lykilútgáfur koma inn og salan á Íslensku efni er mjög fín. Útlendigar eru líka mjög duglegir að kaupa plötur þessa dagana enda gengið mjög hagstætt fyrir þá.

Ég fékk mér nýja safndiskinn með Pétri Kristjáns um daginn og finnst æðislegt að rifja upp feril hans. Þetta er glæsileg útgáfa. 2 diskar og áður óútgefið efni. Það eru m.a. tónleikaútgáfa af Michael Schenker laginu "Attack of the mad axeman" með Start sem mér hefur lengi viljað eignast. Þarf að gera sér bloggfærlu um þessa plötu þegar ég hef tíma :-)

Já og jólaplata Óla Palla úr Rokklandi er fín líka. Loksins jólaplata sem maður kemur til með að nenna hlusta á :-)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er búinn að bíða lengi eftir þessari safnplötu Péturs. Þegar kallinn varð fimmtugur var hann að láta sér detta í hug að gefa svona grip út í tilfefni af því. Af því varð ekki og honum entist svo ekki aldur til að koma verkinu almennilega af stað.

Frábært að sjá þessa útgáfu núna. Minnisvarði um þennan frábæra karakter og besta frontmann Íslandssögunnar.

Aðalsteinn Jóhannes Halldórsson (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 18:13

2 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Sammála Alli

Kristján Kristjánsson, 25.11.2008 kl. 18:45

3 identicon

Er líka búinn að bíða eftir þessari Péturs plötu og mér sýnist hún vera vegleg.

Bubbi J. (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 20:53

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Heill og sæll Kiddi minn!

Vissulega gaman já að þetta safn líti dagsins ljós, en auðvitað hefði já verið skemmtilegra ef hann hefði sjálfur séð um það. ÉG á svo nokkrar minningar frá fjölmörgum fundum okkar, þar sem m.a. ástríki Péturs á rokki og blús bar á góma. Finnst mikill heiður að hafa átt þess kost að kynnast honum nokkuð vel og bý alltaf af þeim kynnum.

Magnús Geir Guðmundsson, 30.11.2008 kl. 00:17

5 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Sammála Maggi minn. Það gerir safnið enn betra þær persónulegu minningar sem fylgja því að hafa þekkt Pétur.

Kristján Kristjánsson, 30.11.2008 kl. 00:51

6 Smámynd: Jens Guð

  Það er ekki lengur hægt að setja inn "komment" við færsluna á DAD.  Á sínum tíma stóð til að þessi hljómsveit héldi hljómleika á Íslandi.  Ég var búinn að gera plakat fyrir hljómleikana.  Þá sló hljómsveitin í gegn í Bandaríkjunum og aflýsti hljómleikunum á Íslandi. 

  Á plakatinu sem ég gerði setti ég upp nafn hljómsveitarinnar í kantrý-stíl.  Það var svo mikið í gangi á þessum tíma að ég man þetta óljóst og mér þótti hljómsveitin ekkert voða spennandi.  Ég held að mig sé ekki að misminna að hljómsveitin bað um að fá að nota kántrý-uppsetningu mína á nafninu.  Og notaði hana á plötuumslag.  Á þeirri plötu er í þakkarlista nafnið Jens.  Ég tók það til mín þó annar Jens væri nefndur á kreditlista sem upptökumaður eða eitthvað.  Það skiptir reyndar ekki öllu máli.  Ég breytti letrinu yfir í Kántrýbæ og sendi Hallbirni Hjartar.  Hann notaði það alla tíð síðan fyrir Kántrýbæ og í bók um kappann er sagt frá þessari sendingu frá mér.  Ég hef hinsvegar ekkert fylgst með DAD.

Jens Guð, 30.11.2008 kl. 02:49

7 Smámynd: Jóhann G. Frímann

Ekki dugar þessi leti. Megum við fá meira að heyra?

Jóhann G. Frímann, 30.11.2008 kl. 05:33

8 identicon

f

Magnús (IP-tala skráð) 4.12.2008 kl. 18:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.