Færsluflokkur: Bloggar
Músíktilraunir
14.3.2007 | 12:16
Í næstu viku hefjast Músíktilraunir 2007.
Undirritaður situr í dómnefnd og hefur gert það í einhver ár Ég verð að segja að þetta er með því skemmtilegra sem ég geri. Það eru 50 hljómsveitir sem taka þátt í undankvöldunum og allavega 10 jafnvel fleiri sem komast í úrslit. Frjóleikinn og spilagleðin í þessum hljómsveitum er ómetanlegur og þarna sér maður best hvaða músíkbylgjur eru í gangi.
Það er líka mjög gaman að taka þátt í störfum dómnefndar. Þar er mikið rökrætt og alltaf skiftar skoðanir enda fólk sem lifir og hrærist í tónlistinni og allir eiga það sameiginlegt að hafa ódrepandi áhuga á tonlist. Eflaust kannast margir við einhverjar sigursveitir Músíktilrauna sem eru eftirtaldar.
1982 - Dron
1983 - Dúkkulísurnar
1984 - Verkfall kennara keppni féll niður
1985 - Gipsy
1986 - Greifarnir
1987 - Stuðkompaníið
1988 - Jójó
1989 - Laglausir
1990 - Nabblastrengir (Umbilical cords)
1991 - Infusoria (Sororicide)
1992 - Kolrassa Krókríðandi (Bellatrix)
1993 - Yukatan
1994 - Maus
1995 - Botnleðja (Silt)
1996 - Stjörnukisi
1997 - Soðin Fiðla
1998 - Stæner
1999 - Mínus
2000 - XXX Rottweiler hundar
2001 - Andlát
2002 - Búdrýgindi
2003 - Dáðadrengir
2004 - Mammút
2006 - The Foreign Monkeys
Eins og sést á þessari upptalningu eru margar hljómsveitir sem hafa náð langt og svo einhverjar sem hafa alveg horfið.
En hjá undirrituðum og fleirum er skemmtileg vika framundan.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fyrsta bloggfærsla
9.3.2007 | 23:05
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)