Strætóraunir (Enn og aftur)

Ég er alveg sannfærður að ein aðalástæðan fyrir lélegu gengi Strætó eru bílstjórarnir. Það virðast allt of margir bitrir menn með mikilmenskubrjálæðiskomplexa ráðast í þetta starf. Ekki allir vissulega en ansi margir finnst mér. Mönnum finnst þeir hafa eitthvað "vald" yfir greyjunum sem "neyðast" til að ferðast með strætó. Farþegar eru þriðja flokks lýður. Hve oft mætir maður fýlusvip og hnussi þegar maður býður góðann dag. 

 

Einn slíkur fékk að sýna "vald" sitt í morgun þegar ég sýndi græna kortið mitt í morgun og það var útrunnið. Klaufaskapur vissulega en lítið mál að redda því á næsta sölustað hefði maður haldið. En nei, bílstjórinn þreif af mér kortið og hreytti í mig reiðilega að kortið væri útrunnið. Mér brá og skammaðist mín vissulega yfir klaufaskapnum en öll erum við mannleg væntanlega og ég spurði bílstjórann hvort ég mætti ekki kaupa nýtt kort á hlemmi þangað sem ég var að fara. En nei nei, þú mátt sitja með niðrí mjódd og kaupa kort þar. Allt í lagi ég næ þér áfram niðrí bæ spurði ég en nei hann ætlaði EKKI að bíða eftir mér. Enda hvað hafa svona ræflar eins og ég að gera með útrunnið kort! Ég stökk út í mjódd og náði með herkjum vagninum sem komst ekki í burtu áður en ég kláraði.

 Ég hef væntanlega bjargað deginum hjá bílstjóranum. Hann náði aldelis að sýna mér hver er "bossinn".

 

En í alvöru talað er svona "þjónusta" út í hött. Smá kurteisi og tilitsemi við farþega kostar ekki neitt og mundi örugglega hvetja fleiri til að nota strætó en mér sýnist ansi langt í það því miður.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Sem vagnstjóra þykir mér ákaflega leiðinlegt að sjá þessa lýsingu.

Það er einlægur vilji okkar vagnstjóra að sýna viðskiptavinum okkar fyllstu kurteisi í hvívetna.

Það getur komið fyrir okkur öll að gleyma að endurnýja strætókort sem annað og síst af öllu eiga viðskiptavinir okkar að fá svo óblíðar móttökur af okkur sem erum afgreiðslufólk í vögnunum.

Ég hef fyrir löngu óskað eftir starfs- og siðareglum fyrir okkur vagnstjóra, en hef talað fyrir daufum eyrum þar til nýlega að nýr framkvæmdastjóri kom til starfa hjá Strætó bs. og hefur hann sýnt málinu áhuga.

Allt of mikill tími og allt of mikil orka hefur farið í annað en starfsmannamál hjá okkar ágæta fyrirtæki undanfarin misseri, en nú eygjum við von.

Fyrir okkar hönd vil ég biðja þig afsökunar og veit að það eru ekki miklar málsbætur viðkomandi vagnstjóra til handa að hann hefur verið undir mjög miklu vinnuálagi að undanförnu vegna manneklu, en málsbætur þó.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 14.8.2007 kl. 12:48

2 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Takk kærlega fyrir þetta Heimir. Maður gleymir stundum þegar maður fær svona viðtökur að auðvitað eru flestir strætisvagnabílstjórar til fyrirmyndar. Það er mikið vinnuálag og örugglega vanþakklátt starf. 

Þetta er mjög góð hugmynd að útbúa siðareglur því eins og þú segir þá eru bílstjórar andlit fyrirtækisins útávið og einn slæmur getur svert 100 góðra bílstjóra og ekki er það sanngjarnt.

Strætó er nefnilega frábær kostur finnst mér. Mér finnst mjög gaman að ferðast í og úr vinnu með strætó. Maður nær að glugga í blöðin, hlusta á nokkur lög í i-poddinum og fylgjast með fjölbreyttu mannlífi. Þar að auki er þetta miklu ódýrari en einkabíllinn.



Kristján Kristjánsson, 14.8.2007 kl. 13:04

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Mér finnst það vera forréttindi að ferðast með strætó og njóta þeirra kosta sem þú telur upp.

Ég held að með tíð og tíma komist æ fleiri á þá skoðun líka.

Fyrir utan það að strætófarþegar eru yfirleitt grennra og spengilegra fólk fyrir utan það að vera brosmildara en þeir sem þjást í símanum á einkabílnum á rauðu ljósi;)

Heimir Lárusson Fjeldsted, 14.8.2007 kl. 14:59

4 identicon

Misjafn sauðurinn er í mörgu fé og það á við um strætóbílstjórana alveg eins og okkur hin.  Hef lent í mörgum uppákomum í strætó í gegnum áratugina - en hins vegar var það umbreyting á leiðakerfinu sem atti mér út í að versla einkabíl.  Þar sem ég er hins vegar ennþá háskólanemi á ég von á því að fá frítt í strætó á næstunni og hyggst nýta mér það til að endurvekja gömul og langoftast góð kynni.  Það er nefninlega mjög gott að ferðast með strætó.  Aldrei að vita nema ég eigi eftir að legga bílnum aftur ef viðkynnin verða góð að þessu sinni!!   Vil benda líka á að ég tók mjög oft strætó í Cardiff og lenti aðeins einu sinni á fúlum bílstjóra - annars var manni alltaf boðið góðan daginn með bros á vör og leyst úr leiðavandræðum, sem er sérstaklega erfitt á álagstímum og tala nú ekki um ef mannekla er.

Guðrún Finnsd. (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 20:29

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Tek undir hjá síðasta ræðumanni.. umbreyting leiðakerfisins fékk mig til að kaupa bíl !

Óskar Þorkelsson, 14.8.2007 kl. 20:59

6 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Mér hefur alltaf þótt mjög prímitívur ferðamáti að fara um á einkabíl, en hins vegar eru strætósamgöngur of strjálar bæði vegna þess að of langt er milli ferða og of langt milli stoppustöðva. Hef bæði í Bretlandi og Danmörku stólað mjög á strætósamgöngur og lestir og það er ánægjuleg reynsla. Það er svo langt síðan ég var seinast á strætó að ég man bara yndislega bílstjórann í Kópavogsstrætó sem hinkraði ef konan á Digranesbrautinni var sein fyrir. það er enginn vafi á því að notalegir strætóbílstjórar eru gersemar og þessir fúlu að sama skapi til að draga úr ánægjunni af því að nota strætó. Vildi óska að almenningssamgöngur kæmust í skikkanlegt horf hér á landi.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 14.8.2007 kl. 22:11

7 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Held að starfsfólk lestarfyrirtækis Danmerkur rótsalti strætóstjóra hérlenda hvað varðar alnemm leiðindi, hroka og yfirgang. Meira að segja miðasjálfsalarnir eru með fýlusvip, auk þess sem starfsfólkið kallar farþegana "idiot", ef það talar ekki dönsku - vita greinilega ekki að orðið er tökuorð.

Annars veit ég lítt um strætó, tók síðast einn slíkan þann 30. ágúst 1995. Finnst þetta eitthvað hálfglatað, sé galtóma dísilreykspúandi vagnana þjóta fram og aftur um borgina. Strætó er svo rekið með svo stjarnfræðilegu tapi að maður skilur ekkert í því hvað er verið að rukka fólk fyrir not af vögnunum, það er bara dropi í hafið við kostnað kerfisins. Allt eins gott að hafa bara frítt í strætó, ellegar slappa þessu alveg.

Ingvar Valgeirsson, 15.8.2007 kl. 13:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.