Músíktilraunir fjórða kvöld
13.3.2008 | 22:51
Þá er fjórða undankvöld Músíktilrauna lokið og að sjálfsögðu tvær sveitir áfram í úrslit á laugardag. Það er geysilega mikill fjölbreytni í tónlistinni í ár og er það vel. Það var poppsveit og þjóðlagasveit með Balklenskum áhrifum sem komust áfram. Annað kvöld lýkur svo undankvöldunum og útlit fyrir skemmtilegt og spennandi úrslitakvöld í Listasafninu á laugardag
Nafn: | Blæti | ||||||||||
Sveitarfélag: | Reykjavík og Mosfellsbær | ||||||||||
MySpace: | |||||||||||
Nöfn og aldur: | Borgþór Jónsson - 18 ár - Bassi | ||||||||||
Um bandið: | Við spilum mjög skemmtilega blöndu af jazz, balkan þjóðlagatónlist, einfaldar laglínur eða mjög flóknar = eitthvað sem heyrist bara hjá okkur. Allir meðlimir Blæti eru mjög færir hljóðfæraleikarar og eigum við því fyllilega skilið að vinna Músíktilraunir. Við byrjuðum saman í hljómsveit fyrir aðeins meira en ári síðan og höfum æft vel allan tímann síðan þá. Upptakan sem fylgir er aðeins minna en árs gömul og má taka fram að okkur hefur farið mikið fram sem hljómsveit síðan hún var tekin, þó hún sé alls ekki slæm. | ||||||||||
Sýnishorn: | Litli strumpur (mp3)
|
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.