Skínandi ljós

Ég fór á forsýningu á mynd Martin Scorsese "Shine a light" áðan. Ég hafði miklar væntingar til myndarinnar þar sem Scorsese er snillingur að ná fram stemmingu á tónleikum. "The last waltz" var gott dæmi um það.

 

Ég var ekki fyrir vonbrigðum. Myndir er alveg frábær. Rolling Stones í banastuði. Það sem mér fannst flott var að Scorsese nær fram stemmingunni hjá Stones á tónleikum. Myndin einbeitir sér af tónleikunum sjálfum og það er ekki mikið um annað efni í myndinni. Það litla sem er nær fram karakter hljómsveitirnar mjög vel. Það er náttúrlega sérstakt að sjá Stones spila í litlu leikhúsi og reyndar ekki vanalegt fyrir hljómsveitina þar sem þeir spila oftast á risastöðum. Í staðinn fáum við hljómsveitina í nærmynd, hrukkur og allt! Prógrammið var mjög flott. Nokkrir gestir komu fram og snilldar leikstjórn Scorsese gerir myndina eftirminnilega skemmtun.

 

Ég hvet alla til að reyna sjá myndina í bíó. Stórt tjald og frábær hljómgæði gefa myndinni auka vægi. Það er allt of sjaldan orðið að það sé hægt að horfa á góðar tónleikamyndir í bíó.

 

Rokk og roll Smile

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðni Már Henningsson

May the good Lord shine a light on you
Warm like the evening sun.

Guðni Már Henningsson, 11.4.2008 kl. 22:22

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Já nú er að skella sér í bío

Hólmdís Hjartardóttir, 11.4.2008 kl. 22:30

3 Smámynd: Gulli litli

keep on rockin

Gulli litli, 12.4.2008 kl. 10:08

4 identicon

Dauðlangar að sjá myndina enda mikill Stónsari sjálf. Mér finnst hinsvegar bíóverðið orðið svo blóðugt að ég hafði nú hugsað mér að sjá hana bara hér heima í stofu enda sjónvarpið stórt og hljómgæðin góð. Hlakka mikið til að sjá hana!

Ragga (IP-tala skráð) 12.4.2008 kl. 11:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.