Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007
Gleðilegt ár...
31.12.2007 | 14:01
.....kæru bloggvinir. Takk fyrir æðislega skemmtilegt bloggár og sjáumst hress eftir áramót.
Í kvöld fylgist maður væntanlega með árinu fjúka burt í góðra vina hópi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Íslenskar Plötur Ársins
30.12.2007 | 16:06
Hér er minn listi með innlendum plötum ársins. Tilnefningarnar voru ekki mjög erfiðar en uppröðunin var erfið því mér fannst margar plötur mjög jafnar að gæðum.
1 | . Mugison-Mugiboogie |
2 | . Björk-Volta |
3 | . Gus Gus-Forever |
4 | . Mínus-The Great Northern Whalekill |
5 | . I Adapt-Chainlike Burden |
6 | . Páll Óskar-Allt Fyrir Ástina |
7 | . Skátar-Ghosts Of The Bollocks To Come |
8 | . Ólöf Arnalds-Við og Við |
9 | . Sprengjuhöllin-Tímarnir Okkar |
10 | . Sigur Rós-Hvarf/Heim |
11 | . Hörður Torfa-Jarðsaga |
12 | . Megas-Frágangur |
13 | . Sign-The Hope |
14 | . Soundspell-An Ode To The Umbrella |
15 | . Jan Mayen-So much better than your normal life |
Tónlist | Breytt 31.12.2007 kl. 11:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Jesús Kristur Súpergoð
29.12.2007 | 23:29
Ég skellti mér í Borgarleikhúsið í kvöld og sá Jesus Christ Superstar. Fyrirfram leist mér geysivel á þessa uppfærslu. Krummi í Mínus, Jens úr Brain Police, Lára úr Funerals, Maggi úr Gus Gus (Sem er reyndar leikari líka) ásamt reynsluboltum á borð við Ingvar E. Sigurðsson, Jóhann G. ofl.
Það er óhætt að segja að ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Ég var mjög ánægður að sjá strax í byrjun að Bjössi trommari og Bjarni gítarleikari Mínus voru í hljómsveitinni sem var alveg brilljant! (Að vísu leist mér ekki á að hljómsveitin var staðsett fyrir framan sviðið í byrjun og þó að ég hafi séð vel á sviðið fann ég til með greyið stráknum á fyrsta bekk sem sá sennilega ekkert nema rassinn á Bjössa trommara, en hljómsveitin seig niðrí gryfju eftir forleikinn) Krummi í hlutverki Jesú var klæddur eins og emmm...Krummi og Jens í hlutverki Júdas var líka í sínum rokkfötum. Lára var í leðurdressi og Ingvar í hlutverki Pílatusar var í jakkafötum! Æðislegt.
Þessi sýning var ROKKópera með stóru erri. Útsetningarnar voru flottar rokkstjörnurnar stóðu sig með prýði og Ingvar og Bergur Þór stálu sviðinu þegar þeir voru þar. Sviðið var einfalt og dökkt. Stór kross var helsta sviðsmyndin og sviðsetningin hentaði þungum útsetningum verksins mjög vel.
Ég mæli eindregið með þessari sýningu!
Loksins frí
29.12.2007 | 12:24
Jæja þá er loksins komið smá frí eftir jólatörnina. Þó það hafi verið þriggja daga frí um jólin þá fóru þeir allir í jólaboð sem er náttúrlega æðislegt og ég átti yndisleg jól með mínu fólki :-) En núna er fimm daga frí þar sem maður getur loksins lagst í smá leti og farið að horfa á myndir og hlusta á tónlist og lesa bækur og svoleiðis :-)
Eins ætla ég að leggjast yfir plötur ársins og set saman mína lista um helgina.
Ég er ekki kominn nógu langt frá törninni til að sjá hvaða útgáfur gengu vel og hverjar ekki en það liggur samt beint við þrjár gæðaútgáfur sem virðast hafa selt vel í jólaösinni. Að sjálfsögðu er sala ekki stimpill á gæði, það vitum við öll en það er alltaf gaman þegar gæðaútgáfur seljast vel.
Í fyrsta lagi er það plata Palla Óskars "Allt fyrir ástina". Sú plata hefði getað farið á hvorn veginn sem er. Palli hefur verið lengi í burtu og langt síðan hann gaf út sína síðustu sólóplötu. En Palli kom sá og sigraði og endar sennilega með söluhæðstu plötuna fyrir þessi jól. Hann gerði allt sjálfur. Gaf út og dreifði og sá um allt kynningarstarf. Platan er geysilega vel heppnuð. Alger gæðagripur og ég óska Palla innilega til hamingju með plötuna.
Mugison platan er án efa plata ársins og hún seldist líka vel. Mugison gaf út plötuna sjálfur og Sena dreifði henni. Hann gaf hana út á sínum eigin forsemdum og uppskar sinn sess sem einn af sterkustu listamönnum ársins!
Loks vil ég nefna Sigur Rós sem var með DVD sem heitir Heima og plötu sem heitir Hvarf/Heim. Einnig voru þeir nýbúnir að gefa út bók/DVD/Geisladisk úr heimildamyndinni Hlemmur.
Heima DVD seldist yfir 5000 eintök sem er frábært miðað við að DVD seljast yfirleitt ekki í svona fjölda. Myndin er einstaklega vel heppnuð og dómur Breska tónlistarritsins Q segir allt sem segja þarf "Sigur Rós has reinvented the music film" (5 stjörnur).
Aðrar útgáfur sem ég man eftir sem gengu vel (ég er örugglega að gleyma einverjum) sem mér fannst flokkast undir gæðaútgáfur eru Gus Gus, Sprengjuhöllin, Bloodgroup, Hjaltalín, Megas o.fl.
Ég birti betri lista eftir áramót þegar ég hef tíma til að skoða útkomuna :-)
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Gleðileg Jól!
23.12.2007 | 16:16
Gleðileg jól kæru vinir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Nessum Dorma
19.12.2007 | 18:45
Á meðan jólaflóðið gengur yfir og ég nái lífi aftur utan vinnu ætla ég nú að skella einu og einu lagi sem minnir á hátíðirnar í smá öðrvísi útsetningum kannski
Þessi útgáfa af Nessum Dorma er bara snilld!
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Oh Come All
18.12.2007 | 18:41
Ye Faithful.
Þar sem ég sit fastur í jólaplötuflóðinu ætla ég bara setja inn eitt jólalag
Tónlist | Breytt s.d. kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Notum Aflið
15.12.2007 | 17:00
Jens Guð vekur athygli á aðstæðum Aflsins sem eru systursamtök Stígamóta á Norðurlandi, á bloggsíðu sinni. Framlög sveitafélaganna til samtakanna eru skammarleg finnst mér. Sérstaklega Húsavíkurbær sem leggur 2000 kr á mánuði til samtakanna samhvæmt heimildum Jens.
En jáhvæða er að listamenn á borð við Lay Low leggur allan ágóða sinn af næstu plötu sinni "Ökutímar" til samtakanna. Einnig mun Leikfélag Akureyrar legga til alla miðasölu á leikritinu "Ökutímar" í janúar til samtakanna. Húrra fyrir þessu fólki. Það er meiri skilningur þar á ferð en hjá sveitafélögum.
Notum aflið á blogginu og vekjum athygli á þessu málefni.
Hér er kynning á samtökunum sem ég fékk lánað af heimasíðu samtakanna.
Hvað er Aflið?
Aflið er samtök sem voru stofnuð á Akureyri árið 2002 í framhaldi af tilraunastarfsemi Stígamóta þar sem í ljós kom mikil þörf fyrir samtök af þessu tagi. Starfsemin byggir á forsendum þolenda kynferðislegs ofbeldis og/eða heimilisofbeldis.
Þar sem um mjög viðkvæm og persónuleg mál er að ræða er lögð rík áhersla á að fyllsta trúnaðar og þagmælsku sé gætt um öll mál og þá einstaklinga sem þangað leita.
Fyrir hverja er Aflið?
Aflið er fyrir alla sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi og/eða heimilisofbeldi og aðstandendur þeirra s.s. maka, foreldra, systkini og vini sem óska eftir ráðgjöf.
Það þarf mikinn kjark til að leita sér aðstoðar eftir áfall af þessum toga og er sérstaklega tekið tillit til þess þegar leitað er til Aflsins, því þar starfa sem leiðbeinendur einungis þeir sem eru sjálfir þolendur ofbeldis.
Hvað er í boði?
Símavakt allan sólarhringinn.
Einstaklingsviðtöl.
Sjálfshjálparhópar fyrir þolendur kynferðis- og heimilisofbeldis.
Fyrirlestrar um starfsemi Aflsins, kynferðis- og heimilisofbeldi og afleiðingar þess.
Farið er í skóla, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök eftir beiðnum.
Öll þjónusta Aflins við þolendur og aðstandendur þeirra er þeim að kostnaðarlausu.
Hversu algengt er kynferðisofbeldi?
Tölfræðin sýnir að:
· * 1 af hverjum 4 stúlkum
· * 1 af hverjum 10 drengjum
verða fyrir einhvers konar kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur.
Talið er að önnur hver kona hafi þurft að þola einhverskonar kynferðisofbeldi á lífsleiðinni.
Í hverju felst starfið?
Vinnan á Aflinu felst í því að gera einstaklinga meðvitaða um eigin styrk og aðstoða þá við að nota hann til að breyta eigin lífi og að sjá ofbeldið í félagslegu samhengi en ekki sem persónulega vankanta.
Við lítum svo á að þeir sem hingað leita séu "sérfræðingarnir" í eigin lífi, það er að segja:
Enginn þekkir betur afleiðingar kynferðisofbeldis en sá sem hefur verið beittur því.
Þar sem um sjálfshjálparstarf er að ræða ber hver einstaklingur ábyrgð á sinni vinnu en fær stuðning og samkennd frá annarri/öðrum menneskju/m með sömu reynslu.
Þeir sem leita til Aflsins eru alls staðar að af landinu en þó sérstaklega frá Norðurlandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fyrsti jólagjafadagurinn
12.12.2007 | 13:57
Stökk í hádeginu og keypti fyrstu jólagjafirnar í ár. Ég er aldrei í neinum vandræðum að kaupa jólagjafir. Ég enda reyndar oft að kaupa allt of mikið fyrir sjálfann mig
Það var gott að labba um miðbæjinn í dag og ég var fljótur að finna gjafirnar. Verst er ef ég þarf að fara í verslunarmiðstöðvar, þá er mér oftast efst í huga að koma mér burt sem fyrst.
Annars dauðöfunda ég núna Óla Palla fyrir að sjá Led Zeppelin tónleikana. Það er eitthvað sem hefði verið hægt að gefa allavega annann fótinn fyrir
Annars á ég lítið líf þessa dagana fyrir utan vinnuna en það er alveg í lagi. Þetta er orðinn fastur hluti af tilverunni og ég veit þegar ég hætti í músíkbransanum þá á ég eftir að fá nokkra ára fráhvarfseinkenni
Hér er smá framlag í jólaundirbúninginn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Á innsoginu
6.12.2007 | 19:31
Nú er sá tími ársins kominn í vinnunni að ansi margir viðmælendur eru á innsoginu. Maður hringir og oft á línunni heyrist innsog: siðan "Geturu sent mér *** í dag! Hún er alveg að klárast" svo annað innsog
En ég vil fá þetta lag í Eurovision!



Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)