Færsluflokkur: Bloggar
Magnaðir Mínustónleikar
15.7.2007 | 12:21
Fór á tónleika með Mínus á Grand Rokk í gærkveldi. Þetta var í fyrsta skiftið sem ég sé þá með nýja skipaninu og þetta voru æðislegir tónleikar. Það var í fyrsta lagi æðislegt að sjá þá aftur á litlu sviði. Hljómgæðin voru léleg til að byrja með en lagaðist fljótt. Þeir vorum mun þyngri en áður og bandið brilleraði alveg. Nýji bassistinn er fínn og Bjössi trommari er alltaf að verða betri og betri. Hann er einn besti trommuleikari landsins í dag, engin spurning. Bjarni var fínn á gítarnum og lögin urðu hrárri með bara einum gítarleikara og það var fínt. Það er spurning með flóknari lög eins og t.d. "Futurist" þau verða öðrvísi "live" en eins og kom fram áður, hrárri og kraftmeiri. Krummi var í fínu formi mikill léttleiki og spilagleði í strákunum.
Ég skemmti mér þrælvel og er enn með suð í eyrum eftir mikið rokk og ról :-)
Ég verð að taka fram ánægju mína með reykbannið. Mér finnst allt annað líf að vera tónleikum núna, sérstaklega á svona litlum stöðum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mínus tónleikar í kvöld
14.7.2007 | 17:38
Mér sýnist vera komið gott plan á kvöldið. Fyrst dinner svo DVD kvöld. Síðan ætla ég og Grumpa að skella okkur á tónleika með Mínus á Grand Rokk. Hlakka til að sjá hvernig nýja skipanin á sveitinni kemur út. Ég er mjög ánægður með nýju plötuna og hlakka til að heyra lög af henni "live".
Annars eru þessir dagar undanfarið alveg ótrúlegir. Maður er farinn að halda að maður búi ekki lengur á Íslandi. Ég man satt að segja ekki eftir öðrum eins blíðveðrakafla. Fór í gönguferð um Elliðardalinn í dag með i-podd og bók og naut blíðunnar. Lagðist við ána og var næstum sofnaður við plötu með Tangerine Dream (Thief) í poddinum :-)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Yndislegur dagur
12.7.2007 | 14:07
Ég er svo heppinn að vinna í miðbænum Auðvitað notar maður öll tækifæri sem gefst að kíkja út enda ýmislegt að stússa utandyra
Mér finnst æðislegt að labba laugarveginn í hádeginu, setjast á kaffihús og fylgjast með mannlífinu. Túristarnir eru mjög áberandi þessa dagana og lita mannlífið
Svo eftir vinnu fær maður sér góðann göngutúr, kíkir í sund eða ræktina. Ég er farinn að stunda yoga tvisvar í viku núna og finnst það æðislegt. Það er ein besta líkamsrækt sem ég hef prófað því maður er algerlega endurnærður á líkama og sál eftir tímana.
Í kvöld eftir ræktina er það svo kökur og kruðerí hjá Grumpu sem er víst orðin örlítið eldri en hún var. Hlakka til Njótið dagsins kæru vinir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Skrýtið
12.7.2007 | 09:55
Fargjöld hækka. Ferðum fækkar. Þjónusta minnkar og enginn áhugi hjá borgaryfirvöldum í reykjavík að minnka notkun einkabílsins. Hmmm varla geta menn verið hissa 30 þúsund færri farþegar og það er minni minnkun en stjórnendur áttu von á. En ég held þeir þurfi ekki að hafa áhyggjur. Þeim tekst örugglega að fækka farþegum enn meira með þessu áframhaldi.
![]() |
Færri með strætó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvar var tískulöggan?
7.7.2007 | 15:42
Ég fæ aldrei nóg að skoða 80's tískuna. Í hvaða heimi vorum við? Þótti þetta virkilega kúl?
Þið verðið að skoða þessa myndklippu
En gerið það, horfið á allt myndbandið. Miðkaflinn er sérstaklega ótrúlegur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Robert Plant neitar orðrómi um endurreisn Led Zeppelin
3.7.2007 | 17:03
Samkvæmt vefritinu www.totalrock.com neitar Robert Plant orðrómi um að Led Zeppelin séu að koma saman aftur.
Þessi orðrómur hefur reyndar alltaf dúkkað upp við og við undanfarin ár. En allavega fullyrðir Total Rock að Plant segir þetta dellu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Jónsmessuganga
23.6.2007 | 01:06
Ég var að koma úr Jónsmessugöngu um Elliðardalinn. Það var gengið frá Árbæjarsafni niður gömlu þjóðleiðina niðrí dal. Við komum við í æðislegum garði þar sem elsti greniskógur landsins er og það var upplifun. Maður trúir því varla að svona sé til rétt hjá manni. Ábúandinn gékk með okkur um garðinn og fræddi okkur um garðinn. Síðan var gengið niður að virkjuninni á Orkuveitunni og á leiðinni fræddu tveir leiðsögumenn okkur um sögu dalsins o.fl.
Þetta var æðislega gaman. Einn af þessum hlutum sem maður gerir allt of sjaldan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þessi stígvél!
22.6.2007 | 13:47
Þetta er reyndar skrítin svona "kannski" frétt En ef Nancy kæmi mundi ég fara á tónleika með henni. Hún söng mörg frábær lög. Sérstaklega dúettarnir með Lee Hazlewood sem eru bara snilld. Svo gaf hún út stórgóða plötu fyrir nokkrum árum í samstarfi við Morrissey og fleiri stórgóða listamenn.
Hún opnaði Kill Bill myndina hans Tarantinos með laginu "Bang Bang" sem gaf ekkert nema gæsahúð. En er hægt að toppa þetta myndband?
![]() |
Nancy Sinatra til landsins? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Æðislegir Air tónleikar
20.6.2007 | 08:31
Það var góð upplifun að sjá Air á tónleikum. Þeir voru með hljómsveit með á sviðinu og var sérstaklega gaman að hafa lifandi trommur en ekki trommuheila eins og stundum er hjá Elektró hljómsveitum. Mér fannst prógrammið helst til stutt en uppklöppin tvö voru æðisleg sérstaklega lokalagið. Sviðið, hljómurinn og ljósin voru fín og þetta var æðisleg kvöldstund
![]() |
Klappaðir upp tvisvar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
JoJo og Bruce
16.6.2007 | 21:31
Sagan af JoJo trúbador og Bruce Springsteen er fræg. JoJo var að spila á strikinu þegar Springsteen labbaði framhjá og fékk lánaðann gítar og spilaði nokkur kög með honum. Það væru ekki margar stjörnur sem mundu gera það. Hér er myndband með köppunum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)