Færsluflokkur: Bloggar
Væntanlegar plötur
15.6.2007 | 20:49
Næsta mánuð eru eftirtaldar plötur áhugaverðar finnst mér
White Stripes-Icky Thump
25 júní
Ryan Adams-Easy Tiger
Instant Karma: The Amnesty International Campaign To Save Darfur
King Diamond-Give Me Your Soul Please
2 júlí
Chemical Brothers-We Are The Night
Velvet Revolver-Libertad
UNCLE-War Stories
Queensryche-Mindcrime At The Moore (Live)
Smashing Pumpkins-Zeitgeist
Nick Drake-Famely Tree
Bad Religion-New Maps Of Hell
Interpol-Our Love To Admire
Þetta er svona stæðstu útgáfurna sýnist mér sem eru áhugaverðar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Heilsudrekinn
11.6.2007 | 13:21
Ég ákvað fyrir um 3 vikum að taka átak í ræktinni. Ég stunda reyndar mikið hefðbundna rækt, sund, göngur og tek stundum á í tækjum í líkamsræktarstöðvum. En ég hef fundið fyrir óvenjumiklum stirðleika í skrokknum undanfarið og ákvað að kaupa mér kort í Heilsudrekanum sem er kínversk heilsurækt í Skeifunni. Ég hef verð það áður og þekki sæmilega til þar.
Og það var ekkert smá! Eftir fyrstu tímana í leikfiminni verkjaði mig í öllum mögulegum og ómögulegum stöðum í líkamanum. Ég fann svo greinilega hvað ég var í litlu formi og var næstum búinn að gefast upp eftir fyrstu 3 til 4 tímana. En þá kom upp þrjóskan. "Ég skal sko ekki gefast upp" hugsaði ég og mætti í alla tíma. Fyrstu 2 vikurnar voru hræðilegar. Mig verkjaði í baki, fótum, hausnum og allstaðar. Tók einhverja tíma í nuddi til að slaka á. Og nú loks er þetta eitthvað að skila sér tilbaka og lærdómurinn er að sjálfsögðu skýr. Maður verður að halda sér í formi. Punktur! En ég verð að viðurkenna að næstum öll orkan mín hefur farið í þetta undanfarið ásamt miklu álagi í vinnu en ég er allur að koma til baka núna
Það datt uppfírir fundurinn á akureyri hjá rokkklúbbnum en við héldum æðislegan fund hjá bókaklúbbnum Skruddunum á Eyrarbakka í gær Blogga betur um hann fljótlega.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Slen
3.6.2007 | 18:25
Það er búið að vera hálfgert slen yfir mér síðustu daga. Sennilega einhver sumarpest. Slappleiki án þess að vera beint fárveikur. Þoli ekki þannig pestir. Maður verður eitthvað svo orkulítill
Náði samt að fara í skemmtilegt viðtal á föstudaginn. Það voru aðilar að gera heimildarmynd um dauðarokk. Það var þrælskemmtilegt viðtal þar sem ég lýsti dauðarokksbylgjunni frá mínu sjónarhorni. Lýsti upplifun mína á sínum tíma þegar svokallað "Thrash metal" þróaðist í "Dauðarokk" með hljómsveitum á borði við Morbid Angel, Death o.fl. Einnig fór ég aðeins yfir Íslensku senuna eins og ég upplifði hana á þessum tíma. Hlakka mikið til að sjá þessa mynd
Annars er ég aðallega búinn að ligga yfir gömlum Robert Mitchum myndum yfir helgina. Mitchum er ekkert smá svalur leikari. Hans "méreralvegsamaumalltogalla" taktar eru æðislegir og mér finnst hann líka betri leikari en margir vilja ætla honum Það er líka augljóst hvaðan leikarar á borð við Michael Madsen hafa tekið sinn leikarastíl. Mitchum engin spurning
Ég er mest svekktur að hafa ekki komsit til akureyrar um helgina en bæti það upp næstu helgi. Þá mæti ég norður á fund hjá Rokkklúbbnum mínum. Við ætlum líka að halda kveðjugilli fyrir Sigga Sverris sem er á leið til Glasgow í nám. Ætli það verði ekki splað eitt eða tvö AC/DC lög þar
Jæja best að halda áfram með Mitchum kallinn. Er að fara setja mynd í spilarann sem heitir "The Yakuza" með kallinum og ef ég man rétt þá er hún frábær
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Frábært
31.5.2007 | 13:49
Hlakka ekkert smá til að sjá þessa tónleika Hef verið aðdáandi Air frá fyrstu plötu þeirra "Moon safari" kom út 1998. Mér finnst nýja platan þeirra "Pocket symphony" mjög góð og er viss um að þessir tónleikar verða spennandi. See ya there!
![]() |
Miðasala á tónleika Air hefst á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Dagsetningar á Evróputúr Police
29.5.2007 | 00:57
Það er nokkuð pottþétt held ég að Police spila ekki á Íslandi enda túrinn örugglega niðurnjörfaður. Hér eru dagsetningar og staðir sem þeir spila í Evrópu ef einhver ætlar að reyna að sjá þá
29 Aug 2007 | Stockholm | SE | Globe Arena | Sold Out | Presale Ended | Not Available | |
30 Aug 2007 | Stockholm | SE | Globe Arena | Buy Tickets | Presale Ended | Not Available | |
01 Sep 2007 | Aarhus | DK | Vestereng | Buy Tickets | Presale Ended | Not Available | |
04 Sep 2007 | Birmingham | GB | National Indoor Arena | Sold Out | Presale Ended | Available | |
05 Sep 2007 | Birmingham | GB | National Indoor Arena | Sold Out | Presale Ended | Not Available | |
08 Sep 2007 | London | GB | Twickenham Stadium | Buy Tickets | Presale Ended | Available | |
09 Sep 2007 | London | GB | Twickenham Stadium | Buy Tickets | Presale Ended | Not Available | |
11 Sep 2007 | Hamburg | DE | AOL Arena | Buy Tickets | Presale Ended | Available | |
13 Sep 2007 | Amsterdam | NL | Arena | Sold Out | Presale Ended | Not Available | |
14 Sep 2007 | Amsterdam | NL | Arena | Buy Tickets | Presale Ended | Not Available | |
16 Sep 2007 | Prague | CZ | Sazka | Coming Soon | Coming Soon | Not Available | |
19 Sep 2007 | Vienna | AT | Stadthalle | Sold Out | Presale Ended | Not Available | |
22 Sep 2007 | Munich | DE | Olympiastadion | Buy Tickets | Presale Ended | Available | |
25 Sep 2007 | Lisbon | PT | National Stadium | Coming Soon | Coming Soon | Not Available | |
27 Sep 2007 | Barcelona | ES | Olympic Stadium | Sold Out | Presale Ended | Not Available | |
29 Sep 2007 | Paris | FR | Au Stade de France | Sold Out | Presale Ended | Available | |
30 Sep 2007 | Paris | FR | Au Stade de France | Buy Tickets | Presale Ended | Not Available | |
02 Oct 2007 | Turin | IT | Stadio Della Alpi | Buy Tickets | Presale Ended | Available | |
06 Oct 2007 | Dublin | IE | Croke Park | Sold Out | Presale Ended | Not Available | |
08 Oct 2007 | Antwerp | BE | Sportpaleis | Sold Out | Presale Ended | Not Available | |
09 Oct 2007 | Antwerp | BE | Sportpaleis | Sold Out | Presale Ended | Not Available | |
10 Oct 2007 | Mannheim | DE | SAP Arena | Sold Out | Presale Ended | Available | |
13 Oct 2007 | Dusseldorf | DE | LTU Arena | Buy Tickets | Presale Ended | Available | |
15 Oct 2007 | Manchester | GB | MEN Arena | Sold Out | Presale Ended | Available | |
16 Oct 2007 | Manchester | GB | MEN Arena | Sold Out | Presale Ended | Not Available | |
19 Oct 2007 | Cardiff | GB | Millenium Stadium | Buy Tickets | Presale Ended | Available |
Eins og sjá má eru ansi margir tónleikar uppseldir en oft er hægt að fá miða hjá fyrirtækjum sem sérhæfa sig í miðasölu. Þar eru miðarnir yfirleitt mun dýrari og tékka þarf á að þeir séu örugglega viðurkenndir miðasalar. Eins er oft hægt að kaupa miða á E-Bay.
![]() |
The Police hefja tónleikaferð sína um heiminn í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kátt í höllinni
28.5.2007 | 01:07
Þetta voru fínir tónleikar með Purple og Heep í kvöld. Uriah Heep komu á óvart. Voru þrælfínir og fluttu flest sín frægustu lög á borð við Easy livin', July morning, Look at yourself og So Tired o.fl. Voru með nýjan trommara sem setti örugglega góðan kraft í bandið.
Deep Purple voru flottir að vanda. Ian Gillan var smá ryðgaður í byrjun en hrökk svo í gang. Hljómurinn var alveg frábær og langt síðan að ég hef heyrt jafn góðan trommuhljóm á tónleikum. Prógrammið var nákvæmlega það sama og ég hafði sett í fyrri færslu mína í kvöld.
Höllin var troðfull og fín stemming. Gaman Gaman
![]() |
Rokkað í Laugardalshöll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Deep Purple & Uriah Heep í kvöld
27.5.2007 | 15:46
Í kvöld verður svo sannarlega rokk og roll af gamla skólanum í höllinni þar sem kempurnar í Deep Purple og Uriah Heep spila. Það þarf lítið að kynna þessar sveitir enda báðar orðnar goðsagnir í rokkheiminum. Sérstaklega Deep Purple.
Uriah Heep voru stofnaðir 1970 í London Englandi og áttu sín gullnu ár frá 1970-1975 með David Byron sem söngvara. Hann hætti 1977 og hafa Heep lítið gert að viti síðan þá en lifa enn á gömlum tímum. Þeir spiluðu hér á landi fyrir einhverjum árum í Broadway minnir mig en ég missti af þeim tónleikum og þeir þóttu ekkert sérstakir. En þeir hafa verið að fá ágæta dóma fyrir túrinn þeirra sem stendur núna yfir og verður gaman að rifja upp slagara á borð við Easy Living o.fl.
Í dag eru meðlimir Uriah Heep eftirfarandi
Mick Box - guitar, vocals
Trevor Bolder - bass, vocals
Bernie Shaw - lead vocals
Phil Lanzon - keyboards, vocals
Russell Gilbrook - drums, vocals
Aðeins einn gítarleikarinn Mick Box er eftir frá gullaldartímabili sveitarinnar.
Depp Purple þarf ekki að fara mörgum orðum yfir. Þeir sýndu það og sönnuðu í laugardalshöllinni síðast að þeir eru í fantaformi og betri hljómsveit af gamla skólanum er vart hægt að biðja um. Þeir gáfu út í fyrra stórfína plötu "Rapture of the deep" og verður eflaust eitthvað flutt af þeirri plötu í kvöld ásamt gömlum slögurum.
Þetta er síðasti lagalisti af tónleikum sem ég komst yfir sem þeir spiluðu á þessum túr-
Pictures of home
Things I never said
Into the Fire
Strange kind of Woman
Rapture of the Deep
Fireball
Wrong Man
Steve Morse solo and Well Dressed Guitar
When a Blind Man Cries
Don Airey solo
Lazy
The Battle Rages on
Don Airey solo
Perfect strangers
Space Truckin
Highway Star
Smoke on the Water
Encore:
Hush with Ian Paice solo
Roger Glover solo
Black Night
Það er ekki víst að sami listi verði í kvöld en þetta ætti að gefa einhverja mynd af hvaða lög verða spiluð í kvöld,
Ég er allavega spenntur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Í Borgarstjórn með börnin!
25.5.2007 | 16:19
Þessir krakkar hafa örugglega meira vit á samgöngumálum heldur en núverandi meirihluti. Hvernig væri að menn færu að vakna og gera sér grein fyrir mikilvægi gott strætókerfis fyrir höfuðborgarsvæðið. Eins og krakkarnir skilja (ekki borgarráðsmenn) þá mun kostnaðurinn skila sér í minni umferð, hreinna lofti og færri slysum.
Ég tek ofan fyrir börnunum. Þau hafa skýra sýn á lífið
![]() |
Kostnaður við strætósamgöngur myndi skila sér í umhverfis- og slysavernd" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Instant Karma Diskur til styrktar Darfur
21.5.2007 | 22:20
Það kemur út diskur til styrktar Darfur í næsta mánuði. Jens Guð var búinn að segja frá helstu lögum en hér er heildarlisti laga á plötunni sem verður tvöföld. Mjög áhugaverður diskur og gott málefni :-)
Diskur: 1
1. Instant Karma - U2
2. #9 Dream - R.E.M.
3. Mother - Christina Aguilera
4. Give Peace a Chance - Aerosmith, Sierra Leone's Refugee All Stars
5. Cold Turkey - Lenny Kravitz
6. Whatever Gets You Through the Night - Los Lonely Boys 7. I'm Losing You - Corinne Bailey Rae
8. Gimme Some Truth - Jakob Dylan, Dhani Harrison
9. Oh, My Love - Jackson Browne
10. Imagine - Avril Lavigne
11. Nobody Told Me - Big & Rich
12. Jealous Guy - Youssou N'Dour
Diskur: 2
1. Working Class Hero - Green Day
2. Power to the People - Black Eyed Peas
3. Imagine - Jack Johnson
4. Beautiful Boy - Ben Harper
5. Isolation - Snow Patrol
6. Watching the Wheels - Matisyahu
7. Grow Old With Me - The Postal Service
8. Gimme Some Truth - Jaguares
9. (Just Like) Starting Over - The Flaming Lips
10. God - Mick Fleetwood, Jack's Mannequin
11. Real Love - Regina Spektor
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Vorblót
19.5.2007 | 13:31
Það er mikið um að vera þessa dagana og lítill tími til að blogga Vikan hefur verið æðisleg. Var á tónleikum á Nasa með Oumou Sangare og Tómasi R á fimmtudagskvöld. Það voru frábærir tónleikar. Hljómsveit Tómas R var í fantastuði og prógrammið mjög skemmtilegt. Mest í Kubustemmingunni sem átti vel við kvöldið.
Oumou Sangare tónleikarnir voru eftirminnilegir. Oumou er eitt stæðsta og virtasta nafnið í heimstónlistinni og hefur verið síðustu 10 ár þó hún sé ekki mjög þekkt hér heima. Tónleikarnir voru yndi fyrir augu og eyru. Hún er geysilega sterkur karakter á sviði jafnt sem utan. Ég hafði takifæri til að tala við hana fyrir tónleikana og það geislaði af henni Þessir tónleikar fara í minningabókina (tónleikakaflann)!
Í gær var ég aftur á Nasa þar sem Stórsveit Samúels J. Samúels og Salsa Celtica spiluðu. Sammi er að gefa út disk á mánudaginn og var prógrammið af þeirri plötu. Ég hef aldrei séð Stórsveitina áður og vissi satt að segja ekki alveg hverju ég átti von á. En þessi hljómsveit algerlega "blew me away" ef ég má sletta smá. Æðisleg lög, frábærar útsetningar og landsliðið í hljóðfæraleik. Ég hef aldrei verið jazzáhugamaður og kann ekki að skilgreina jazz tónlist. Þessi sveit spilar jazzskotið fönk mundi ég segja. Æðislegt "Grúf" einkenndi lögin og rhytmasveitin var æðisleg
Salsa Celtica áttu fyrir erfitt verk að fylgja Samma eftir og ég verð að segja að mér líkaði sveitin engan veginn. Blanda af Skoskri þjóðlagatónlist og Salsa tónlist hljómar vel á blaði en var ekki að gera sig fyrir minn smekk. Mér leiddist eiginlega. En það var góð stemming og mörgum líkaði greinilega sveitin og er það vel. Ekki minn tebolli
Svo í kvöld er það Goran Bregovic í Höllinni og er ég ekkert smá spenntur. Svo á morgun er það að ná áttum eftir erfiða en æðislega viku og á ég örugglega eftir að liggja sem skata yfir músík og myndum Og já ræktin
skamm skamm. Verð að skella mér á morgun og friða samviskuna og skrokkinn
Svo er það Deep Purple og Uriah Heep næstu helgi. Ótrúlegt hvað við sem búum í svona litlu landi eigum það gott
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)