Færsluflokkur: Bloggar
Volta fyrsta Íslenska platan inná topp 10 í USA
16.5.2007 | 19:23
Plata Bjarkar Volta verður fyrsta Íslenska platan sem nær inná topp 10 á Bandaríska Billboard vinsældarlistans. Hún lendir í 8 eða 9 sæti. Enn eitt dæmið um vinsældir Bjarkar og mesti árangur Íslensks listamanns hingað til
Volta fer víðast hvar hátt á lista í öðrum löndum. Dæmi-
Ísland - 1 sæti
Ítalía - 12. sæti
Írland - 10. sæti
Noregur - 1. sæti
Danmörk - 1. sæti
Þýskaland - 9. sæti
Holland - 17. sæti
Frakkland - 3. sæti
Sviss - 3. sæti
Austurríki - 5. sæti
Japan - 12. sæti
Portúgal - 9. sæti
Belgía - 9. sæti
Frábær árangur en það besta er náttúrlega að diskurinn er frábær
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Oumou Sangare
14.5.2007 | 12:16
Það er skammt viðburða á milli þessa dagana og næsti atburður á dagskrá hjá mér eru tónleikar Oumou Sangare á Nasa næsta fimmtudag.
Hér er kynning á Oumou frá Hr. Örlygi.
Oumou er oft kölluð Söngfugl Wassoulou tónlistarinnar, en svo nefnist hin suður-Malíska tónlistarstefna sem hún hefur gert að sinni eigin.
Malí hefur löngum skipað sérstakan sess hjá unnendum heimstónlistar. Það mikla og metnaðarfulla tónlistarlíf sem þar er að finna byggir á ríkri, aldagamalli hefð landsins í bland við alþjóðlegar stefnur og strauma svo úr verður seiðandi blanda sem erfitt er að standast, líkt og þeir sem á hafa hlýtt geta vitnað um. Og í gróskumiklu landslagi Malískrar tónlistar stendur Oumou Sangaré uppúr eins og tindur, enda helsta söngstjarna landsins allt frá því hún gaf út sína fyrstu skífu, Moussolou (Konur), árið 1990, aðeins 21 ára að aldri. Oumou er oft kölluð Söngfugl Wassoulou tónlistarinnar, en svo nefnist hin suður-Malíska tónlistarstefna sem hún hefur gert að sinni eigin.
Frá upphafi ferils síns hefur Oumou barist ötullega fyrir því að bæta stöðu kvenna í Malí, sem og þeirra sem minna mega sín um allan heim; hafa sumir söngtextar hennar því verið umdeildir í hinu oft-íhaldssama samfélagi Malíbúa. Umfjöllunarefni á borð við kynlífsnautnir kvenna og kröfu þeirra til sjálfstæðis og menntunar hafa ekki alltaf fallið í ljúfan jarðveg hjá öldungum landsins. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir að hún er ein virtasta og vinsælasta söngkona landsins og einn helsti fulltrúi þess að alþjóðavettvangi heimstónlistarinnar, en breiðskífurnar Ko Sira (1993) og Worotan (1996) auk safnskífunnar Oumou (2004) komu allar út hjá hinu virta plötufyrirtæki World Circuit og hlutu einróma lof gagnrýnenda allra þjóða. Hún hefur og farið vel heppnaðar tónleikaferðir um heiminn með listamönnum á borð við Femi Kuti, Baaba Maal og Boukman Ekseryans. Það er Hr. Örlygi sérstök ánægja að standa fyrir komu þessarar frábæru listakonu á Vorblót 2007.
Oumou Sangaré kemur fram í Nasa við Austurvöll, þann 17. maí. Tónleikar hefjast kl. 20:00
Oumou Sangaré heimasíða: www.worldcircuit.co.uk/#Oumou_Sangare::Biography
Oumou Sangaré á Wikipedia: www.en.wikipedia.org/wiki/Sangare
Ég held þetta verði frábærir tónleikar. Ég hef hlustað á diska með Oumou og þeir eru mjög góðir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skruddufundur í kvöld
13.5.2007 | 12:08
Jæja þá er komið að næsta fundi hjá bóka og menningarklúbbnum Skruddunum í kvöld. Einhvernveginn grunar mig að kosningaúrslitin eigi eftir að hafa hug allra í kvöld en kannski komumust við að til að ræða bók mánaðarins sem var Zorró eftir Isabel Allende. Ég á auðvitað von á að allir verði búnir að lesa hana spjaldanna á milli
Annars ætla ég að vera á tónleikum í Þjóðleikhúsinu í dag þar sem Áshildur Haralds flautuleikari og fleiri flytja verk eftir Atla Heimi Sveins.
Sjáumst hress í kvöld kæru Skruddufélagar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fáar konur á þingi
13.5.2007 | 11:35
Það hefur ekki batnað mikið kynjaskiftingin á þingi.
Skoðum Skiftinguna
Framsókn 7 þingmenn 5 karlar 2 konur
Sjálfstæðisflokkur 25 þingmenn 17 karlar 8 konur
Frjálslyndir 4 þingmenn 4 karlar 0 konur
Samfylking 18 þingmenn 12 karlar 6 konur
Vinstri Græn 9 þingmenn 5 karlar 4 konur
Þetta gera 43 karlar og 20 konur
Samt einni konu fleiri en á síðasta kjörtímabili skilst mér.
![]() |
24 nýir þingmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Konono í kvöld :-)
11.5.2007 | 19:50
Það verður örugglega frábær stemming í Hafnarhúsinu í kvöld þar sem hljómsveitin Konono n 1 frá Kongó er að spila. Þetta er akkúrat rétta stemmingin finnst mér. Fyrsti alvöru sumarstemmingsdagurinn í bænum í dag. Það var æðislegt að labba í sólinni það stutta sem maður náði í dag. Það var brjálað í vinnunni þannig maður náði ekki alveg að njóta dagsins. Vonandi verður svona veður á morgun. Þá fer maður snemma að kjósa og síðan í bæjinn
Ég ætla að sofa á því í nótt hvort ég kjósi VG eða Samfó. Það verður annað hvort. Ég er farinn að hallast örlítið meira að Samfó síðustu daga en kemur í ljós á morgun
Það verður allavega afríkönsk stemming hjá undirrituðum í kvöld
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Spakmæli dagsins
10.5.2007 | 11:32
Spakmæli dagsins eru úr Njálssögu og er tileinkað öllum stjórnmálamönnum landsins.
Úr Njálssögu:
Segið aldrei meira en þið getið staðið við.
Gangi öllum vel á lokasprettinum. Við fáum að gefa okkar dóm á laugardaginn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Dýr landskynning?
9.5.2007 | 08:07
Finnst stjórnmálamönnum 15 milljónir dýr landskynning? Það er áætlað að um 2 milljarðar horfi á tónleikana. Hve miklum tekjum hefði þetta getað skilað á ferðamönnum sem kæmu til landsins vegna tónleikanna. Mér finnst þetta ekki gott mál. Vonandi verða ný stjórnvöld skilingsríkari á að við lifum í alþjóðlegu umhverfi og ættum að nota öll góð tækifæri til að kynna ísland á jákvæðann hátt. Var þetta kannski út af því að þetta er umhverfisátakstengt verkefni? Maður hlítur að spyja sig?
Myndin sem er hér til hliðar er frá Live Earth tónleikunum í London.
![]() |
Hætt við Live Earthtónleika í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þjóðarauðurinn okkar
6.5.2007 | 12:58
Hér er enn eitt dæmið um hvað við Íslendingar erum ríkir á hugviti og hvar þjóðarauður okkar liggur. Af hverju gengur stjórnvöldum svo illa að skilja hve mikilvægur listageirinn er og hve mikil verðmæti liggja í listsköpun og útflutningi á tónlist og fleiri listgreinum? Það er búið að plægja akurinn. Björk, Sigur Rós. Nú berast fréttir af velgengni Garðar Cortes sem dæmi.
Á sama tíma berast fréttir að Geir Haarde hafi hafnað boði um að styrkja stórtónleika væntanlega vegna hræðslu um að boðskapurinn vekji athygli á umhverfisvernd Íslendinga sem ekki er til fyrirmyndar þessa dagana.
Fyrirtæki eru farin að fatta þetta og styrkja orðið listgreinar mun meir. En einhverstaðar í stjórnkerfinu er þvílík tregða og gamaldags hugsunargangur ríkjandi. Vaknið og verið velkomin á 21 öldina takk fyrir!
Ég óska Jakobínurínu til hamingju með samninginn og er ekki í neinum vafa að þeim eigi eftir að ganga vel á sínu sviði hér heima sem erlendis. Þeir hafa kraftinn og frumleikannn sem þarf til sköpunar.



![]() |
Jakobínarína semur við EMI |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Voltadagur
4.5.2007 | 20:30
Það var rosalega gaman í vinnunni í dag. Volta platan með Björk kom til landsins og við vorum að undirbúa útgáfudaginn á mánudaginn og stemmingin var æðisleg. Platan var á blasti allann daginn og mikill erill :-) Það er góð stemming hjá fólki fyrir plötunni finnst mér. Hún er að fá fína dóma víðast erlendis. Ég er viss um að hún á eftir að teljast til merkilegri tónverka poppsögunnar. Útsetningarnar á plötunni eru æfintýralegar. Lagasmíðarnar með því betra sem Björk hefur gert. Ég ætla samt ekki að tíunda of mikið um plötuna en er spenntur að heyra viðbrögð bloggvina minna og annarra um plötuna. Þó hún sé vissulega mun aðgengilegri en síðustu verk Bjarkar þá þarf hún samt góða hlustun.
Ég hlakka svo til helgarinnar. Tveir góðir dagar framundan. Samblanda af afslöppun og heimsóknum er á dagskránni og nokkrar góðar myndir á leið í DVD tækið auk þess sem ég var að fá fullt af góðum diskum. Segji frá því nánar í næstu bloggum :-)
Bloggar | Breytt 6.5.2007 kl. 11:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Konono No 1
2.5.2007 | 22:49

Bloggar | Breytt 6.5.2007 kl. 01:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)