Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Hef grun um....

...að lagið komi betur út með Presley sóló en með dótturinni.

 

 

 

 

 

En Presley mun alltaf lifa!


mbl.is Lisa Marie Presley syngur með föður sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leningrad Cowboys

Gleymi aldrei þegar ég sá myndina Leningrad Cowboys goes to America. Ég lá úr hlátri. Hljómsveitin gaf svo út nokkra diska sem flestir vore mjög skemmtilegir. Það var varla partý nema lag með LC lenti á fóninum. Samstarf þeirra með Kór Rauða Hersins var söguleg. Það var ekki algengt held ég að sá kór blandaði saman við popptónlist. Það eru til tónleikar með þeim á DVD sem eru stórkostlegir. Risakór og þjóðlagadansarar og stórskemmtileg hljómsveit. Ekki slæm blanda. Það eru nokkur lög á You Tube af þessum tónleikum. Hér er myndbandið af laginu "Those were the days" :-)

Strætóraunir (Enn og aftur)

Ég er alveg sannfærður að ein aðalástæðan fyrir lélegu gengi Strætó eru bílstjórarnir. Það virðast allt of margir bitrir menn með mikilmenskubrjálæðiskomplexa ráðast í þetta starf. Ekki allir vissulega en ansi margir finnst mér. Mönnum finnst þeir hafa eitthvað "vald" yfir greyjunum sem "neyðast" til að ferðast með strætó. Farþegar eru þriðja flokks lýður. Hve oft mætir maður fýlusvip og hnussi þegar maður býður góðann dag. 

 

Einn slíkur fékk að sýna "vald" sitt í morgun þegar ég sýndi græna kortið mitt í morgun og það var útrunnið. Klaufaskapur vissulega en lítið mál að redda því á næsta sölustað hefði maður haldið. En nei, bílstjórinn þreif af mér kortið og hreytti í mig reiðilega að kortið væri útrunnið. Mér brá og skammaðist mín vissulega yfir klaufaskapnum en öll erum við mannleg væntanlega og ég spurði bílstjórann hvort ég mætti ekki kaupa nýtt kort á hlemmi þangað sem ég var að fara. En nei nei, þú mátt sitja með niðrí mjódd og kaupa kort þar. Allt í lagi ég næ þér áfram niðrí bæ spurði ég en nei hann ætlaði EKKI að bíða eftir mér. Enda hvað hafa svona ræflar eins og ég að gera með útrunnið kort! Ég stökk út í mjódd og náði með herkjum vagninum sem komst ekki í burtu áður en ég kláraði.

 Ég hef væntanlega bjargað deginum hjá bílstjóranum. Hann náði aldelis að sýna mér hver er "bossinn".

 

En í alvöru talað er svona "þjónusta" út í hött. Smá kurteisi og tilitsemi við farþega kostar ekki neitt og mundi örugglega hvetja fleiri til að nota strætó en mér sýnist ansi langt í það því miður.

 

 

 


525 dagar

Þangað til við losnum við versta forseta allra tíma.

 

 




Neil Young vill losna við hann fyrr. <


Gay Pride

Í dag fer ég í bæjinn og fylgist með gleðigöngunni eins og alltaf. Ég man ekki eftir að hafa misst af neinni göngu frá upphafi. Gay pride er orðinn ómissandi hlutur bæjarlífsins finnst mér eins og menningarnótt og þorláksmessa og Iceland Airwaves og fleiri ómissandi viðburðir. Að sjálfsögðu styð ég baráttu samkynhneigðra heils hugar. Það að fólki sé mismunað vegna kynhneigðar, trúarbragða, litarhátts eða kynferðis er mér algerlega óskiljanlegt og okkur mannkyninu til skammar.

 

Þó ég teljist sjálfur vera Gagnkynhneigður hefur samkynhneigð alltaf verið hluti af mínu lífi því svo margir sem eru mér náin eru samkynhneigðir. Kannski ekkert skrýtið þar sem mér líður alltaf best með frjóu og opnu fólki. Samkynhneigð er reyndar það eðlilegur hluti af mínu lífi að sjaldnast tek ég eftir því hvort fólk sé samkynhneigt eða ekki. Enda hvaða máli skiftir það? Þegar Freddie Mercury dó og það varð opinbert að hann væri gay þá sá maður það að sjálfsögðu eins með Rob Halford o.fl sem hafa opinberað samkynhneigð en þetta er einhvernveginn ekkert sem maður spáir í dags daglega. Sennilega út af því að mér finnst ekkert óeðlilegt við það :-)

 

Til hamingju með daginn og hlakka til að taka þátt í gleðinni í dag. Af tilefni dagsins set ég hér með nokkur lög sem hafa einhverja Gay tengingu

 

 

 

Ein uppáhalds....

Glamrokk hljómsveit mín er Mott The Hoople. Ég heyrði fyrst lagið "Golden age of rock n&#39;roll" þegar ég var patti og kolféll fyrir sveitinni. Hún var hætt þegar ég uppgötvaði hana en ég fór að kaupa plötur með söngvara sveitinnar Ian Hunter og hef verið mikill aðdáandi hans alla tíð. Sá hann á tónleikum í New York 1989 þar sem hann kom fram með gítarleikarnum Mick Ronson sem var í Hoople undir það síðasta en er frægastur fyrir að spila með David Bowie. Það vær æðislegur konsert. Mick Ronson keðjureykti alla tónleikana og það kom mér ekki á óvart að hann skildi deyja úr krabbameini allt of snemma.

 

Bestu plötur Mott The Hoople era að mínu mati "Mott" frá árinu 1973 og "The Hoople" frá árinu 1974. Lagið "All the young dudes" af samnemdri plötur sló  í gegn 1972. Þar söng David Bowie með sveitinni og ég held að flestir þekkja það lag með Hoople.

 

Hér eru lag með Mott The Hoople. Roll away the stone

 

Hér er svo "All the young dudes" með Ian Hunter, David Bowie og Mick Ronson tekið á Freddie Mercury Tribute tónleikunum.


Hungurverkfall

Eitt af betri lögum sem kom úr "Grunge" bylgjunni svokölluðu er að mínu mati lagið "Hungry Strike" með hljómsveitinni Temple of the dog. Temple var stofnuð fljótlega eftir lát söngvara Mother Love Bone og var hugsuð sem "tribute" til Wood. Stone Gossard og Jeff Ament voru í Mother Love Bone og stofnuðu síðar Pearl Jam með söngvararnum Eddie Veder sem syngur á plötunni ásamt Chris Cornell úr Soundgarden sem er væntanlegur til landsins í vetur. Matt Cameron úr Soundgarden lemur svo trommur á plötunni. Hljómveitin gaf út eina plötu sem hét einfaldlega Temple of the dog og kom út 1991 Hvet alla til kynna sér þessa plötu. Hún er frábær. Hér er lagið Hunger Strike þar sem Chris Cornell og Eddie Veder fara á kostum :-)

Vandræðagangur

Það er búið að vera vandræðagangur með þessa "endurkomu" Van Halen. Það er sorglegt að upprunanlegi bassaleikari sveitinnar Michael Anthony sé látinn víkja fyrir son Eddie Van Halen. Það líta margir á það sem skrýtinn leik.

 

En Eddie Van Halen hefur ekki verið sjón að sjá undarfarin ár vegna áfengissýki og því miður hef ég ekki trú á neinu af viti frá honum.

 

En ég á góðar minningar með Van Halen. Sá þá á tónleikum bæði með David Lee Roth árið 1984 og með Sammy Hagar 1989 minnir mig. Óneitanlega voru tónleikarnir með Roth betri og með eftirminnilegri tónleikum sem ég hef séð Smile

 

 


mbl.is Roth með Van Halen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hurt

 

 

 

Flottastur! 


Spamalot

SpamalotÉg er að fara til London í október að sjá Rush og Dream Theater. Ég hef bloggað um það nokkrum sinnum enda mikið spenntur. Ég hef mikið verið að velta fyrir mér undanfarið hvaða leikrit ég ætti að sjá í London því það er ófrávíkjanegur siður hjá mér að fara alltaf í leikhús í London. Það er orðið allt of langt síðan ég fór síðast þannig það var mikið úr að velja. Ég áhvað að lokum að skella mig á Monty Python&#39;s Spamalot. Það er örugglega þrælskemmtilegt stykki LoL

 

Ég læt það nú vera að draga ferðafélaga mína með. Fólk sem ég þekki hefur ekki jafn gaman að leikhúsferðum eins og ég. Ég er reyndar í óopinberum leikhúsferðaklúbbi hér heima en er sennilega langduglegastur af hópnum að fara í leikhús.

 

Ég man samt eftir að í einni hópferð sem ég var fararstjóri á rokktónleika í Englandi, þá dró ég slatta af hópnum að sjá "Cats" og fannst flestum það mjög gaman. Það var samt fyndið að sjá hóp af síðhærðum þungarokkurum á Cats og við vöktum þó nokkra athygli Grin

 P.S.

Í minningu Lee Hazlewood sem var að deyja setti ég nokkur lög hér til hliðar í dálkinn lag dagsins. Ég á allar plötur sem eru fáanlegar með kallinum og fannst hann æðislegur. Mæli sérstaklega með "These Boots Are Made for Walkin&#39;: Complete MGM Recordings" "Cowboy in Sweden" og góðri safnplötu með Lee og Nancy Sinatra. 

H.I.F.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband