Bloggfærslur mánaðarins, október 2007
Smá strætórokk
30.10.2007 | 22:00
Eftir fýlufærsluna hér á undan um strætó er við hæfi að koma með tvö skemmtileg myndbönd
Hér er strætóferð með Weird Al Yankovic
Magic Bus með The Who er eitt skemmtilegasta tónleikalag þeirrar sveitar engin spurning
Góða ferð
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eftirlitsmenn í Strætó!
29.10.2007 | 22:49
Ég er oft að spá í hvort Strætó bs geti ekki gert neitt rétt. Það virðist allt sem þeir gera klúðrast. Eitt rétta skrefið var tekið í haust þegar ákveðið var að gefa framhaldsskólanemum frítt í strætó. Gott mál og mætti gera það sama fyrir eldri borgara og öryrkja. Ég er endilega ekki fylgjandi persónulega að það sé frítt í strætó. Ég vil frekar borga og fá góða þjónustu og gott leiðarkerfi. En Strætó tekst alltaf að fá á sig neikvæða mynd. Lélegt leiðarkerfi og hundfúlir bílstjórar og handónýt heimasíða eru nokkur atriði. Nú hefur enn eitt bætt við. EFTIRLITSMENN Í STRÆTÓ!
Ok mér finnst mjög gott mál að strætó ráði menn til að fylgjast með þjónustu og leiti við að þjónusta farþega. En það sem ég var vitni af í morgun var hreint fáráðlegt. Maður kom inní vagninn og kallaði valdsmannlega. Allir upp með strætókortin! Ég tók upp græna kortið mitt og skildi ekki alveg tilganginn þar sem ég hafði stuttu áður sýnt vagnstjóranum það þegar ég gékk inní vagninn. Það var útlensk kona sem skildi ekki alveg hvað maðurinn var að spyrja um og hann spurði hana "Where are you from". Bíddu fyrirgefðu; Hvað kemur starfsmönnum Strætó við hvaðan fólk kemur? Þetta er dónaskapur!
En ég áttaði mig svo á að aðaltilgangurinn hjá þessum manni var að athuga hvort skólafólk væri að misnota kortin sín því þeir sem voru með slík kort voru krafin um persónuskilríki! Það er semsagt orðið málið hjá Strætó að ráða menn til að athuga hvort skólafólkið sé að misnota kortin sín! Hvað ætli þetta kosti bæði í launakostnaði og fækkun á farþegum sem eru ekki til í að lenda í dónaskapi þessara eftirlitsmanna? Það er ekki nóg með að þurfa bíða í lon og don eftir vagni, lenda svo í úrillum bílstjórum heldur er líka verið að trufla þig í miðri ferð að skoða kortið þitt? Hvað með fólk sem borgar með miðum eða peningum. Þurfa þau að útskýra það fyrir þessum mönnum?
Enn og aftur er verið að líta á strætófarþega sem annars flokks fólk. Krakka, gamalmenni eða fátæklinga sem hafa ekki annann kost. Og þessir örfáu sem vilja ferðast með strætó af umhverfis og hagkvæmisátæðum fækka og fækka. Ég lýsi fullri ábyrð á stjórnendum borgarinnar. Það er skylda ykkar að bjóða uppá gott samgöngukerfi sem ALLIR GETA NOTAÐ!!!!!!!!!!!
Skammist ykkar!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3 mínútur af Sex Pistols
27.10.2007 | 01:07
Ég var sæmilega spenntur fyrir nokkrum árum þegar Sex Pistols komu loks saman á ný og ætlaði að sjá tónleika með þeim á stóra sviðinu á Hróarskeldu. Stuttu eftir að þeir birtust á sviðinu stirðari en andskotinn og ekki í miklu formi fannst mér þá kastaði einhver lítill pönkari eitthvað uppá svið og Johnny Rotten stoppaði lagið og hraut einhverjum ónotum að áhorfendum. Þetta fannst litlu pönkurunum sniðugt og köstuðu örlítið seinna meira uppá svið. Nei nei þá ruku prímadonnurnar af sviðinu og spiluðu ekkert meira!
Þannig að þessi mikla endurkoma tók um 3 mínútur og ég áhvað að ekki mundi ég aftur reyna að sjá þessa gaura á sviði. Vissulega er þetta merkileg hljómsveit sögulega séð og plöturnar með P.I.L. fansst mér mjög fínar. En ef guðfeður pönksins þola það ekki að einhverju smádóti sé hent uppá svið er ekki mikið pönk eftir finnst mér!
Sex Pistols hita upp fyrir tónleikaferð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 01:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Plug me in og fleira góðgæti
25.10.2007 | 21:00
Var að fá í dag þriggja diska DVD með AC/DC sem heitir "Plug me in". 7 klukkutímar af DC ætti ekki að láta mig leiðast næstu daga
Fékk líka nýja Robert Plant & Alison Krauss diskinn og nýja diskinn með Neil Young!
Ég veit hvað ég verð að gera um helgina
Hér er svo smá upprifjun fyrir Nasa 1 des
Rokk og roll
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Frábært
24.10.2007 | 20:44
Ég sá Skid Row í höllinni í den! Það verður gaman að sjá þá aftur. Þó að Sebastian Bach sé hættur hafa þeir verið að gefa út ágætis plötur. Thickskin kom út árið 2003 og var þrælfín og svo kom plata í fyrra sem heitir "Revolutions per minute". Ekki eins góð og Thickskin fannst mér en ágæt engu að síður. Sjáumst á Nasa 1. des :-)
Skid Row kemur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
AC/DC til Íslands?
24.10.2007 | 19:15
Í síðustu færslu kommentar nýr bloggvinur, Steinn Bachman og segir frá að hann sé í viðræðum um að setja upp AC/DC tónleika á næsta ári. Ef þetta gengur eftir er stórviðburður í aðsigi. AC/DC er ein besta tónleikasveit veraldar og það er orðið langt síðan þeir voru á tónleikaferðalagi.
Ég hef séð AC/DC þrisvar á tónleikum og finnst þeir alveg frábærir. Angus Young á sviði er ólýsanlegur. Og þó þeir séu nú eitthvað farnir að eldast þá hef ég enga trú á öðru en að þeir séu enn flottir á sviði :-)
Ég bíð spenntur eftir frekari fréttum af þessu máli :-)
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gullmoli
22.10.2007 | 22:22
"I am sick to death of people saying we have made 11 albums that sounds exactly the same. In fact, we've made 12 albums that sound exactly the same"
Angus Young
Tónlist | Breytt 23.10.2007 kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Skemmtileg bæjarstemming
21.10.2007 | 16:54
Rosalega er að myndast skemmtileg stemming í kringum Airwaves Verður skemmtilegri með hverju árinu. Bæði með gestum sem virðist fjölga með hverju ári og Íslendingum sem átta sig alltaf með þessarri hátíð hvað vig eigum fjölbreytta og skemmtilega flóru af frábærum listamönnum. Þegar dagskráin er skoðuð kemur svo sannarlega í ljós hvað við eigum rosalega mikið af frábærum hljómsveitum og listamönnum. Þetta er að sjálfsögðu það sem útlendingar sækja í.
Ég held að alltof margir Íslendingar átta sig ekki almennilega á þessu. Fólk er dálítið upptekið af einhverskonar efnishyggju og "lífsgæðakapphlaupi" til þess að átta sig á þessum geysilega mannauði sem við eigum. Bullandi menningarlíf í leikhúsi, tónlist og geysilegt hugvit er meira virði er skyndigróði að mínu áliti. Það sem skiftir máli er að sjálfsögðu að við byggjum upp þjóðfélag sem byggir á bjartsýni og þeim krafti sem við eigum. Hlúum að þeim sem minna mega sín og notum ríkisdæmi okkar, bæði menningarlegu og veraldlegum til að byggja upp ekki rífa niður!
Annars er þetta búin að vera erfið en skemmtileg vika. Það var ljóst í byrjun viku að maður mundi ekki eiga mikinn tíma aflögu utan vinnu og Airwaves stússi. Það var líka reyndin Í dag er ég bara búinn að liggja eins og skata og er að hlusta á tónlist og horfa á Hitchcock myndir
Ég veit ekki einu sinni hvaða bók Skrudduklúbburinn valdi á síðasta fundi! Hmmm er þetta ekki bara það sama og ég var að röfla yfir í pistilum hér fyrir ofan. Maður gleymir vinum sínum og fjölskyldu í vinnubrjálæði
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Kíkjið á þetta!
17.10.2007 | 17:02
Ásdís Sig bloggvinkona er að biðja um stuðning. Lesið endilega pistil hennar hér og kíkið á undirskrifarlistann hér
Ég er innilega sammála henni í þessum málum. Hve mikið á að níðast á öldruðum og öryrkjum. Ég kannast við þessi mál hjá foreldrum mínum sem eru alltaf að lenda í einhverjum skerðingum hjá TR.
Það er kominn tími á þjóðarátak í þessum málum!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Góð Lundúnarferð
15.10.2007 | 20:49
Ég er nýkominn heim eftir skemmtilega ferð til London
Ég tók ekki með mér tölvu né leitaði neina uppi. Ákvað að kúpla mér frá öllu og njóta ferðarinnar. Nei nei! Þá náttúrlega verður allt vitlaust heima og komin ný borgarstjórn! Hmmm maður má greinilega ekki skjóta sér aðeins frá!
Ég er búinn að vera flakka um á netinu í kvöld og skoða gamlar fréttir og blogg og verð að viðurkenna að ég veit ekkert hvað gerðist! Það á örugglega ýmislegt eftir að koma í ljós næstu daga og líklegt að Bingi þurfi nú eitthvað að svara fyrir sig líka. Villi greinilega kominn í marga hringi og ljóst að lygavefurinn í kringum þetta mál er orðinn ansi flókinn!
En hvað um það! London var æði eins og alltaf. Ég hef komið svo oft þangað að maður þurfti ekki að eyða miklum tíma í að leita neitt uppi. Gamli fararstjórinn kom líka uppí mér og ég var í raun með allt tilbúið fyrir ferðina, alla miða og svoleiðis þannig maður gat bara slakað á á milli atburða.
Rush tónleikarnir voru frábærir. Ég átti von á góðu en þeir voru betri eins og ég sagði í viðtali við Óla Palla á Rás 2 daginn eftir tónleikana. Hann hringdi í mig til London þar sem ég var staddur á Regent Street og tók smá viðtal í beinni, Rush spiluðu í rúma 3 tíma með einu hléi og það sem kom mér mest á óvart var lagavalið sem var mjög skemmtilegt. Fullt af lögum sem maður átti ekki von á að heyra. Hitt var svo "showið". 3 risaskjáir fyrir ofan sviðið, ótrúlegt lasershow, eldvörpur og hljómgæðin voru hreint ótrúleg. Ég fullyrði að aldrei hef ég heyrt jafngott trommusánd á tónleikum! Ég fór heim á hótel þreyttur og sáttur eftir mikla tónleikaupplifum. Það var líka gaman að láta gamlann draum rætast með að sjá Rush á sviði og þó þeir væru alltaf að gera grín að aldri sínum á tónleikunum var ekki hægt að sjá nein þreytumerki á þeim! Takk fyrir að fagna með okkur útkomu zilljónustu plötu okkar sagði Geddy Lee
Dream Theater tónleikarnir voru líka góðir. Náðu ekki jafnmiklum hæðum og Rush enda eiga þeir ekki jafnmikið af góðum lögum finnst mér. En þetta eru frábærir tónlistarmenn og það var alger unum að sjá og heyra þá spila. Ég var sérstaklega ánægður hvað þeir fluttu mikið af nýju plötunni sem mér finnst sú besta hingað til hjá þeim. En þeir eru svosem engir nýgræðingar. Búnir að starfa í meir en 20 ár Hljómsveitin Symphony X hitaði upp fyrir þá en nutu sín engan veginn vegna slæmra hljómgæða. En ágætis sveit greinilega. Nýja platan þeirra hljómar vel.
Ég blogga svo betur um ferðina á morgun enda nóg um að tala
p.s.
Heiða það var búið að klukka mig!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)