Gethsemane

Ég hef alltaf haft gaman af kvikmyndinni Jesus Christ Superstar. Innilega hippaleg og flott kóreografíuð. Þetta lag hér fyrir neðan er toppurinn finnst mér Smile

 

Gleðilega páska kæru bloggvinir.

 

 


Kowalski

Var loksins að horfa á fræga 70's mynd sem heitir Vanishing Point. Þessi mynd er greinilega með áhrifum frá Easy Rider. Söguþráðurinn var í raun enginn. Gaur að reyna keyra bíl milli fylkja á einhverjum stuttum tíma (aldrei kemur í ljós af hverju) með lögguna á hælunum allan tímann. Hittir á leiðinni allskonar furðutýpur. Það skemmtilega við þessa mynd er hve rosalega hún endurspeglar enda hippatímabilsins í byrjun 70's áratugarins. Margir kunnuglegir karakterleikarar frá þessum tíma koma fram í myndinni ásamt Delanie & Bonnie. Cleavon Little sem leikur Dj Super Soul er eftirminnilegur. Blindur plötusnúður sem leiðbeinir Kowalski aðalhetjunni í gegnum myndina. Tónlistin í myndinni er æðisleg. Allt frá Big Mama Thornton til Mountain. Mæli með þessari mynd fyrir áhugamenn um þetta tímabil Smile

 

Hljómsveitin Primal Scream tók þessa mynd uppá sína arma fyrir nokkrum árum. Hér er lagið Kowalski þar sem þeir nota hljóðbrot úr myndinni. Kate Moss leikur aðalhlutverkið í myndbandinu.

 

 


Blússandi Blús í kvöld

Stundum klikkar Sósíaldagbókin hjá manni. Komst að því fyrir stuttu að ég væri með miða bæði á Magic Slim og co og Íslensku Tónlistarverðlaunin í kvöld Smile Ég ætlaði að taka upp spretthlauparaskóna og stökkva á milli staða en sé að það gengur ekki. Þá víkja Tónlistarverðlaunin fyrir meistara Magic Slim. Það er atburður sem maður má ekki láta fram hjá sér fara! Er spenntur Wizard

 

 

 


Músíktilraunir Úrslit

Þá eru Músíktilraunum lokið þetta árið. 49 hljómsveitir kepptu á 5 undankvöldum og 10 sveitir komust í úrslit. Tónlistin í ár var mjög fjölbreytt enda úrslitin eftir því. Sigursveitirnar spiluðu " pólirythmískt rokk með nokkur áhrif frá jazzi", "Rapp" og "Metalcore". Hljómsveit fólksins spilaði svo rokk.

 

Sigursveitirnar í ár eru:

 

Hljómsveit Fólksins (Símakosning)

The Nellies

 the_nellies

 

 

 

 

 

 

 

 

Sýnishorn:The Nellies 1 (mp3)
The Nellies 2 (mp3)

 

 

3. Sæti

Endless Dark

Endlessdark

 

 

 

 

 

 

 

 Sýnishorn:

Poison In Her Blood (mp3)

 

2. Sæti

Óskar Axels & Karen Páls

 oskaraxelsogkarenpals

 

 

 

 

 

 

 

 Sýnishorn:Unglingar (mp3)

 

 

1. Sæti

Agent Fresco

Agentfresco

 

 

 

 

 

 

 

 

 Sýnishorn:Tríó demó (mp3)

 

 


Músíktilraunir síðasta undankvöld

Í kvöld var fimmta og síðasta undankvöld Músíktilrauna. Tvær hljómsveitir áfram og þá búið að velja þær tíu sveitir sem keppa í úrslitum. Eins og á flestum kvöldum var mikil fjölbreytni í hljómsveitum kvöldsins og ég næ ekki viðlaginu "Glory Glory" úr hausnum Smile

 

Hlakka mikið til úrslitakvöldsins sem verður í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi á morgun. Fjörið hefst kl 17.

 Agentfresco

Nafn:Agent Fresco
Sveitarfélag:Reykjavík
MySpace: 
Nöfn og aldur:

Þórarinn Guðnason, 18 ára - gítar
Borgþór Jónsson, 18 - kontrabassi
Hrafnkell Örn Guðjónsson, 18 - trommur
Arnór Dan Arnarson, 22 - söngur

Um bandið:Agent Fresco er frændi allra... Allavegana þá erum við hljómsveit sem spilar pólirythmískt rokk með nokkur áhrif frá jazzi Við erum allir nemendur í menntaskólanum við Hamrahlíð.
Sýnishorn:Tríó demó (mp3)

 

 Johnnycomputer

Nafn:Johnny Computer
Sveitarfélag:Húsavík
MySpace:http://www.myspace.com/johnnycomputerband
Nöfn og aldur:

Atli - syngur og spilar á gítar
Óskar - spilar á gítar
Birkir spilar á bassatrommur

Um bandið:Hljómsveitin Johnny Computer kemur frá húsavík, og í tvæ vetur höfum við möndlað melódíur niður í lög og æft. höfum æft í frægasta draugahúsi húsavíkur og fengið innblástur af því.
Sýnishorn:Go little south, little north (mp3)

 

 

 


4 júní 1994...

...var ég á Monsters of Rock á Donington og sá þessar frábæru sveitir.

 

 

Main stage:

Second Stage:



Sepultura voru mjög eftirminnilegir ásamt Biohazard sem var tekið rafmagnið af eftir 2-3 lög vegna þess að þeir buðu áhorfendum uppá svið! Aerosmith komu fram með Jimmi Page í nokkrum lögum. Það var ekki leiðinlegt!

 

 

Þetta lag var flutt á hátíðinni.

 

Rokk og roll Smile

 

 

 


Músíktilraunir fjórða kvöld

Þá er fjórða undankvöld Músíktilrauna lokið og að sjálfsögðu tvær sveitir áfram í úrslit á laugardag. Það er geysilega mikill fjölbreytni í tónlistinni í ár og er það vel. Það var poppsveit og þjóðlagasveit með Balklenskum áhrifum sem komust áfram. Annað kvöld lýkur svo undankvöldunum og útlit fyrir skemmtilegt og spennandi úrslitakvöld í Listasafninu á laugardag Smile

 blaeti

Nafn:Blæti
Sveitarfélag:Reykjavík og Mosfellsbær
MySpace: 
Nöfn og aldur:

Borgþór Jónsson - 18 ár - Bassi
Matthías Ingiberg Sigurðsson - 18 ár - Klarinett
Óskar Kjartansson - 18 ár - Trommur
Þórður Sigurðsson - 18 ár - Hljómborð og Harmónikka

Um bandið:Við spilum mjög skemmtilega blöndu af jazz, balkan þjóðlagatónlist, einfaldar laglínur eða mjög flóknar = eitthvað sem heyrist bara hjá okkur. Allir meðlimir Blæti eru mjög færir hljóðfæraleikarar og eigum við því fyllilega skilið að vinna Músíktilraunir. Við byrjuðum saman í hljómsveit fyrir aðeins meira en ári síðan og höfum æft vel allan tímann síðan þá. Upptakan sem fylgir er aðeins minna en árs gömul og má taka fram að okkur hefur farið mikið fram sem hljómsveit síðan hún var tekin, þó hún sé alls ekki slæm.
Sýnishorn:

Litli strumpur (mp3)

 

 

Nafn:Happy Funeral
Sveitarfélag:Reykjavík
MySpace: 
Nöfn og aldur:

Dagur Sigurðsson - Söngur og gítar
Sindri Snær - gítar
Fanney Ósk - söngur
Egill Karlsson - hljómborð
Arnar Ástvaldsson - bassi
Gunnar Gunnarsson - slagverk

Um bandið:Við erum búin að vera starfandi í hálft ár c.a. tónlistar stíllinn er svona ljúf tónlist með smá fjöri einstaka sinnum.

 

 


Smá Næntís

Var í smá næntís fílíng í dag Smile Hér eru tvö fín lög Smile

 

 


Músíktilraunir þriðja kvöld

Þá er þriðja undankvöld Músíktilrauna lokið Smile Tvær hljómsveitir komust áfram í úrslitin að venju. Að þessu sinni frá Hafnarfirði og Mosfellsbæ Smile

 

AstarkariNafn:Ástarkári
Sveitarfélag:Hafnarfjörður
MySpace:http://www.myspace.com/ast arkari
Nöfn og aldur:

Guðmundur Hólm Kárason, söngur, harmonikka og synth
Þórður Páll Pálsson, söngur, gítar og ef til vill synth
Rúnar Steinn Rúnarsson, trommur
Davíð Arnar Sigurðsson, overdrive synth og hljómborð

Um bandið:Erum búnir að leika okkur að því að gera skemmtileg lög sem grípa alla með sér uppí geðtrylltan dans. Erum ekki alveg klárir á hvernig hljóðfæraskipan er og verður en munum við líklegast að hafa hana eins og kemur fram hér að ofan.

 the_nellies

Nafn:The Nellies
Sveitarfélag:Mosfellsbær
MySpace: 
Nöfn og aldur:

Elvar Þór Elvuson 16 ára.Söngur og kassagítar.
Gísli Ársæll Snorrason 16 ára bassi
Óskar Björn Bjarnason 16 ára trommur
Yngvi Rafn Garðarsson 16 ára rafgítar

Um bandið:Hljómsveitin var stofnuð í ágúst árið 2007 af okkur öllum, hljómsveitin er aðeins með frumsamið efni en höfum samt tekið nokkur cover svona okkur til gamans, við semjum allskonar rokktónlist og við hlustum á allt milli himins og jarðar.
Sýnishorn:The Nellies 1 (mp3)
The Nellies 2 (mp3)

 


Músíktilraunir 2 kvöld

Það var mikið rokk á öðru kvöldi músíktilrauna enda komust 2 skemmtilegar rokksveitir áfram í úrslit. Þær eru-

 

Endlessdark

 

Nafn:Endless Dark
Sveitarfélag:Ólafsvík
MySpace:http://www.myspace.com/endlessdarkband
Nöfn og aldur:

Viktor Sigursveinsson, 20 ára : Söngur
Atli Sigursveinsson, 17 ára : Gítar
Egill Sigursveinsson, 16 ára : Hljómborð / Söngur
Hólmkell Leó Aðalsteinsson, 16 ára : Bassi
Daníel Hrafn Sigurðsson : 15 ára : Trommur

Um bandið:Hljómsveitin hefur starfað í sirka 2 og hálft ár. Við spilum Metalcore. Við tókum þátt í músiktilraunum árið 2007 en tónlistarstefnan hefur breyst mikið síðan.
Sýnishorn:

Poison In Her Blood (mp3)

 

 

 

 

 Furrystrangers

Nafn:Furry Strangers
Sveitarfélag:Mosfellsbær
MySpace:http://www.myspace.com/furrystrangers
Nöfn og aldur:

Atli Örn Friðmarsson (1992): Söngur og Gítar
Páll Cecil Sævarsson (1992): Trommur
Kári Guðmundsson (1992): Bassi

Um bandið:Við erum þrír 15 ára gaurar og við höfum mjög mikinn áhuga á tónlist og við höfum spilað saman í 2 ár en byrjuðum fyrir alvöru fyrir rúmu einu ári og stofnuðum hljómsveitina Furry Strangers, við höfum spilað á 3 tónleikum og tónlistin sem við spilum er svona Rock / Screamo / Experimental

« Fyrri síða | Næsta síða »